Sváfum yfir okkur fjölskyldan í fyrsta sinn í mörg ár bara held ég. Man bara ekki eftir að hafa grjótsofið svona rosalega. Er alltaf með símann minn og vekjaraklukku til að koma mér framúr á morgnana. Núna virðist ég hafa slökkt á báðu án þess að muna nokkuð eftir því. Bara svaf róleg áfram.
Er svo heppin að eiga góða nágranna og Gummi hringdi hérna yfir til að athuga hvort ekki ætti að ræsa liðið og hefja daginn. Dætur hans hafa sennilega komið hérna yfir og ekki fengið neitt svar og sagt pabba sínum frá því.
Þannig að á slaginu átta var sprottið á fætur og allir höfðu sig til á mettíma - sennilega best að ég haldi áfram og reyni að komast út í dag. Sat föst heima í allan gærdag. Hundpirruð að komast ekki úr húsi en notaði daginn til að þrífa hérna hjá okkur. Ætla að sjá hvort ég komist ekki út í dag svo ég geti setið á Þjóðskjalasafninu eitthvað. Væri svo til í að mega kippa gögnum þaðan með mér heim... en það er víst borin von :o)
Langur dagur framundan og best að hefjast handa...
Later

Ummæli