Fara í aðalinnihald

Glefsur úr sumarfríinu

Höfum oft verið heppnari með veður í sumarfríi fjölskyldunnar. En hver fer til Norðurlanda og stólar á gott veður? Ekki við - þess vegna tókum við regnúlpurnar okkar með. Og höfum aldeilis haft not fyrir þær líka. Okkur FINNST rigningin góð :o)

Þetta er nú ekki svona slæmt, við höfum haft nóg fyrir stafni og látum þetta ekki á okkur fá. Enda höfum við fengið sólarglætu í gegnum skýin og rigningin hefur ekki verið það mikil að við séum alltaf rennandi blaut.

Fórum í fyrradag í Legoland í Billund, hittum það Elísabetu kennara í Lágafellsskóla. Það eru Íslendingar hér á hverju horni. Fengum skítsæmilegt veður í Legolandi og skemmtum okkur vel. Það rigndi sama og ekkert en við redduðum því, keyptum okkur ponsjó og fórum í sjóræningja vatnsslag á sjóræningjaskipi í garðinum. Svo náttlega þurftum við að prófa vatnalestirnar og allt sem var þarna í boði. Náðum að draga BH með okkur í einn lítinn Xtreme rail leiðangur. Annars er það sko mamman í þessari fjölskyldu sem fer með krökkunum í græjurnar og pabbinn er notaður sem herðatré (hann geymir töskur og myndavélar). Krakkarnir eru nógu stórir til að fara sjálf í öll þessi tæki - en hey - mamman er ekki nógu stór til að vera skilin eftir. Alla vega ekki í stóru tækin. Nenni ekki í mikla snúninga og þeytivindur, púff fæ bara í magann við að skrifa þetta.

Í gær fengum við ský og rigningu öðru hvoru. Hávaðarok fylgdi þessu á ströndinni í Thyborön. Krakkarnir fá ekki nóg af ströndinni. Við vorum þarna í hálftíma og við hjónin hlógum að því að engir nema Íslendingar létu sig hafa þetta veður á ströndinni - krakkarnir í stuttbuxum (því það er ekki kalt) í peysum að búa til sandkastala, svona eins og ekkert væri eðlilegra í sandstorminum þar sem þurrt var á ströndinni.

Þessi bær var nú ekki að heilla okkur. Frekar subbulegt þarna og illa hirt hús og garðar. Iðnaðarverksmiðjur tóku á móti okkur inn í bæinn. Eina sem eitthvað var varið í að sjá var Sniglahúsið. Ætla ekki að lýsa því - set myndir á flikr við tækifæri. Nenntum samt ekki inn, vorum of hlaðin drasli - fötum, skóflum og háfi. Algert must að hafa með sér háf á ströndina hér fyrir neðan sumarhúsið - veiða krabba. Krakkarnir búnir að ná tveimur. Erum með þá sem gæludýr hérna úti í garði í fötu bara. NOT, þeim var sleppt er við fórum af ströndinni í bústaðinn.

Fórum í Holstebro og kíktum á lífið - þar var ekki mikið líf reyndar. KEB vildi vita hvort við værum í Stúí - hans útgáfa á Struer - sem er aldrei kallar annað er Stúí núna. Og Lemvig fékk viðurnefnið Lemðig. Já já við höfum nóg að gera.

Annars var drullað yfir dömuna í Danmörku í gær - jamm - það varð að veruleika þetta sem ég hef oft velt fyrir mér. Þegar fuglahópur flýgur yfir fólk - skíta þeir aldrei þannig að þeir hitti einhvern? Fékk svarið í Holstebro, á göngugötunni í miðbænum. Fannst þetta frekar þungur rigningardropi - eða skrýtið að hjólið sem var að fara framhjá skyldi sletta upp að háls á mér. OJJJ svo sá ég fuglana fljúga fyrir ofan okkur. Hey krakkar er hvítt í hárinu á mér?? Nei þau töldu svo ekki verða svo ég renndi hendinni eftir taglinu (ef tagl skyldi kalla). ÍÍjjjúú, slímugt. Oj mamma það er grænt í hárinu á þér (ég er í alvöru með svona ógeðsgrettu á andlitinu á meðan ég skrifa þetta).

Ég reif pappír úr vasanum og rétti að mínum ektamanni og bað hann vinsamlegast um að gera það besa úr þessu. Sem hann gerði - þreif það mesta úr hausnum á mér og upp úr hettunni minni. Endemis, mínútu áður hafði ég hettuna á hausnum vegna þess að það rigndi. Hvers vegna var ég að taka hana af mér?? Needless to say þá beið ég allan seinnipartinn eftir að komast heim í sturtu - og setja peysuna mína í þvottavélina.

Í Holstebro var farið í leikfangaverslun og krakkarnir fengu að kaupa sér Lego kassa - það var búið að lofa því frá deginum áður. BH sá fyrir sér að bíða að eilífu amen í röð í búðinni í Legolandi því þar var brjálað að gera - stappað af fólki. Og verðið var ekki neitt ódýrara en í venjulegri búð. Svo okkur þótti betra bara að græja þetta í rólegheitum í bænum, sem við gerðum.

Annars er aðalskemmtun krakkana hérna strendurnar þrátt fyrir veðrið, þau láta það ekkert á sig fá. Eða jæja, KBB sagði áðan að næsta sumarfrí yrði til sólarlanda. Og BH sagði í fyrradag að við ættum að skella okkur til sólarlanda í haust. Og ég sem bauð honum til Marmaris í sumar og hann hafnaði því.

Fórum í Stúí (Struer) áðan og skelltum okkur í bíó - sáum Mamma Mia. Við skemmtum okkur bara vel og mælum hiklaust með myndinni. Get alveg sagt að hún er betri en söngleikurinn sem við BH sáum með Halldóri og Kötu 17. júní árið 2000. Þar sem bara ein söngkona gat actually sungið skammlaust og gaurarnir voru svo lélegir að einn þeirra kallaði sinn texta þegar hann átti að syngja.

Í gær var planið að við krakkarnir skelltum okkur í sund, sá nefnilega svona sundskilti hérna í Lemvig. Þið vitið svona axlir og haus upp úr vatni skilti! Sund right?

BH vildi meina að GPS sýndi ekkert sund nær en 70 km. í burtu. En mín var með þetta allt á hreinu. Svo þegar ég sýndi honum skiltið sem vísaði á laugina í plássinu spurði hann "ertu að meina þetta baðstrandarskilti?" Og svo hló hann allsvakalega - hrmpf, mér var ekki eins mikið skemmt - en brosti þó út í annað. Hann hringdi náttlega beint í pabba sinn til að forvitnast um sundlaugamenningu Dana. Ég heyrði náttúrulega bara það sem BH sagði:

BH: Eru einhverjar sundlaugar hérna í Danmörku?
HG: ???
BH: Lóa sá nefnilega sundlaugarskilti hérna í Lemvig og þegar ég sá það benti ég henni á að það væri baðstrandarskilti, [glott]
HG: ????
BH: Já henni þótti það ekki eins fyndið og þér :o)

Kom í ljós að einhverjar eru sundlaugarnar hérna en Hansi mælti ekki með þeim, innilaugar og ekkert verið að bæta heitu vatni útí neitt allt of mikið.

Hins vegar er vatnagarður hérna nálægt og það gæti vel verið að við kíktum á hann - við erum hvort sem er meira og minna blaut hérna.

Værsgo

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Jeremías Lóa - það hlýtur að fara að stytta upp því það er hætt að rigna hér - í bili - efast ekki eina mín að þið náðið að njóta þess að vera saman því - jú - þinn ekta maður er jú eiginlega bara ALLTAF BUSY ;0) keep having fun - ein sem er enn ekki farin í neitt frí hehe Kv. Magnea
Lóa Björk sagði…
Við skellum okkur saman með Hörpu í sumarbústað í haust.
Það er spáð hálfskýjuðu hérna hjá okkur á morgun, smá sól :o)
Það er nú ekki búið að hellirigna allan tímann - bara búið að vera skýjað - ekki sól. Nema smávegis - svona í gegnum skýin :o)
Nafnlaus sagði…
Rignig sól eða fuglaskítur...;-)Skiptir ekki máli, fjölskyldan er saman, og heyrist mér ekki á öðru en þið séuð að hafa það gaman.
Njótið frídagana sem eftir eru.
kv Fríðan sem á eingungis tvo daga eftir í frí ;-)
Nafnlaus sagði…
hahaha skeit ansans fuglinn í hárið á þér. Í alvöru ég hló upphátt :). Þetta er svo sem ágætis gel haha. Bara njótið þess að vera saman. Kv Helga
Lóa Björk sagði…
Við erum alveg að hafa það svooo gott hérna - látum ekki svona smá veður og fugla með magakveisu á okkur fá :o)
Mjög gott veður í dag - sól og hálfskýjað.
Kv. úr Danaveldi

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...