Hellirigning í dag - mígandi Magnús eins og KBB orðaði það. Í fréttum núna er bara vatnsúrhelli - slökkviliðið inni í bæjum að dæla vatni í burtu og tekið viðtal við rennandi blautt tjaldútilegu fólk sem er að forða sér af tjaldsvæðum. Skemmtilegt - ekki eins skemmtilegt og veðurfréttirnar áðan. Þar var sýnt rigning á sunnudag og mánudag, léttir til á þriðjudag, þá er hálfskýjað og sól. og Veðurfréttaþulurinn tilkynnti að sumarið kemur til Danmerkur á þriðjudaginn því næstu daga þar á eftir verður brakandi blíða og hyggeligt. Minni á fyrir þá sem ekki vita að við fjölskyldan höldum heim að kvöldi þriðjudags. :o)
Við vonum bara að góða veðrið sé líka á Íslandi í næstu viku. Hlökkum til að koma heim, en okkur finnst líka ferla notalegt að vera hérna. Þó ég skrifi mikið um rigninguna þá hafa það bara verið báðir laugardagarnir sem hefur verið úrhelli. Hitt hefur allt verið viðráðanlegt.
Fór í Blómabúð áðan - spurði manninn hvort hann talaði ensku, hann hélt það nú. Hann græjaði það sem ég vildi kaupa og áður en hann var búinn komu BH og KEB sem ekki voru með okkur mæðgum í upphafi heimsóknarinnar. Búðin átti að loka kl. 13:00, ég kom inn góðum 20 mínútum fyrir lokun. Þrátt fyrir það sá afgreiðslumaðurinn sig knúinn til að tala aðeins við samstarfskonu sína, tjáði henni hversu týpískt það væri að fólk kæmi akkúrat þegar það ætti að fara að loka sjoppunni. Við gengum engu að síður út rétt fyrir kl. 13:00, veit ekki hvað hann var að kvarta - hann hefði bara sjálfur getað verið fljótari að útbúa blómvöndinn, sem var rosa flottur hjá honum. Held hann hafi bara verið að röfla því hann hélt að við skildum ekki baun hvað hann var að segja - maður á aldrei að gera ráð fyrir slíku, bíða heldur þar til fólk er farið og nöldra svo.
Annars gerðum við lítið í dag - fórum að litlum dýragarði en nenntum ekki inn, það var svo mikil rigning - gerum kannski aðra tilraun á morgun - eða mánudaginn. Fórum og keyptum okkur DVD mynd og hlógum yfir The Pink Panther seinnipartinn. Annars er eina planið heimsókn til Erling og Veru í sunnudagskaffi á morgun.
Og já það er komin sól núna - kannski maður skelli sér í smá göngutúr eftir matinn, sem er í seinna fallinu hjá okkur núna - kl. að verða 20:00
Later

Ummæli