Fara í aðalinnihald

Veðurfréttir

Hálfskýjað og sól, engin rigning fyrr en undir kvöld. Allir spenntir fyrir veðurfréttum - þokkalega íslenskur áhugi.

Fórum aftur í Thorsminde í dag á ströndina. Krakkarnir elska ströndina. Við BH fengum okkur sæti undir steinhleðslu á milli einhverra fjölskyldna sem einnig voru þarna í dag. Vorum þannig alveg í skjóli. Gat í skýjunum akkúrat yfir okkur og sólin skein í nokkrar mínútur. Krakkarnir voru í flæðamálinu að slást við öldur og marglyttur á meðan ég las og BH talaði í símann.

Ákváðum að forða okkur er sólin kvaddi partýið og drifum okkur í bæ sem kallast Söndervig. Ferðamannastaður, skemmtilegt að koma þarna. Skoðuðum sandskúlptúra, það er magnað hvað fólk getur búið til úr sandi.

Næsti viðkomustaður var Spjald, þar var BH á svínabúi hjá Nils og Helgu er hann var 12 ára. Við keyrðum framhjá því býli og fórum í bæinn Spjald þar sem þau hjónin búa nú. Heimsóttum þau með 10 mínútna fyrirvara - alltaf jafn kurteis. Það var gaman að stoppa við hjá þeim. En mikið ferlega er erfitt að vera svona mállaus. Það er ekki séns að ég klambri saman setningu innan 5 mínútna á dönsku. En BH neyddist til að hafa orð fyrir annars mállausu fjölskyldunni. Hann sem tilkynnti öllum sem heyra vildu að hann myndi ekki tala hér dönsku því hann væri búinn að tapa henni allri niður. Annað heyrðist mér nú áðan :o) Ég var nú nokkuð sátt við hvað ég skildi mikið af þeim samræðum sem í gangi voru samt - hélt nokkuð þræði, kom á óvart. Það hefur alveg hjálpað sjónvarpsglápið hérna - enskan með dönskum texta.

Gömlu hjónin komu með okkur að gamla býlinu sínu þar sem sonur þeirra býr nú með fjölskyldu sinni. Þar hefur víst ýmislegt breyst, engin svín í ræktun þar núna. Búið að rífa hluta af húsunum í burtu og hlaðan orðið vinnusvæði. Sonurinn vinnur í vindmyllufyrirtæki og kona hans rekur dagheimili á staðnum. Skilst að áður hafi verið þarna 500 svín á búinu en í dag eru búin með 5000 svín í ræktun - semsagt búið að iðnvæða ræktunina - ekki venjuleg sveitaheimili sem sjá um framleiðsluna.

Er við komum hingað heim aftur um kl. 21 las BH póstinn sinn í fyrsta sinn í dag. Hjónin sem eiga bústaðinn, Erling og Vera, sögðust ætla að kíkja við í kvöld. Við spruttum á fætur og tókum aðeins til í kringum okkur á met tíma en áttuðum okkur fljótlega á því að þau væru sennilega komin og farin aftur. Við bætum úr því að hitta á þau, minna má það ekki vera fyrir lánið á þessum fína bústað.

Næsti hausverkur fjölskyldunnar er bara hvað eigum við að gera skemmtilegt á morgun?

Senere

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...