Fara í aðalinnihald

Færslur

Voffi til sölu... kostar eina tölu

Dóttir mín sendi á mig spurningu á messenger í dag. Spurt var... "Veistu um einhverja sem rækta flotta husky hunda núna?" Ég ætla ekkert að fara nánar út í hvert svar mitt var... í stuttu máli þá hef ég ekkert álit á husky ræktendum á Íslandi. Hundarnir eru allir fínir og flottir... en fólkið, not so much. Þannig að ég myndi sennilega flytja inn ef út í það færi, eða tæki að mér hund sem vantaði heimili. Faðir hennar fékk sömu spurningu - lykilorðið hér er FLOTTA husky hunda ! KBB: Veistu um einhverja  flotta husky hunda til sölu? BH: Leo fæst á 50 þúsund - mamma þín myndi borga 250 þús með Úlfi... Hún sprakk úr hlátri í miðjum íþróttatíma... aha hún er greinilega að þjálfa fingurna í íþróttum... á lyklaborðinu. Ég brosti er hún sagði mér þetta og sagði... satt, myndi sennilega borga meira ef ég vissi að heimilið væri gott. Þessi voffastrákur gerir mig snarvitlausa í skapinu reglulega. Meiri frekjumús og sóðapésa er erfitt að finna. Hann fær það sem hann ætlar sé...

Allt fyrir ástina

Ég fór á fund hjá Korpu um daginn - fastir liðir þar eru hvatning í upphafi fundar og lokarorð... já nákvæmlega... í lok fundar. Ég var beðin um að vera með lokaorð á síðasta fundi. Stef fundarins var "Allt fyrir ástina" og þá skrifar maður út frá því. Hér eru lokaorðin mín frá síðasta fundi: Allt fyrir ástina Það er hægt að segja að ástin sé límið sem heldur öllu saman. Ást getur verið alls konar og það er mismikið sem við gerum fyrir ástina... það fer eftir hver á í hlut ekki satt? Það eru sennilega fá eða engin takmörk fyrir því hvað við gerum fyrir börnin okkar, en meiri takmörk á því hvað við gerum fyrir aðra sem við þó elskum mikið. Ef við einbeitum okkur að rómantísku ástinni þá rakst á smá texta sem mig langar að lesa fyrir ykkur því mér finnst hann lýsa ágætlega þeirri ást sem flestir leita að, en kannski færri finna í raun. Svona lýsti Heilagur Ágústínus frá Hippó ástinni fyrir syni sínum á 4. öld eftir krist. Ástin Ást er tímabundin bilun. H...

Rúst

Ástæða til að halda þessu til haga - stelpan að brillera og mamman verður alltaf stillt bara héðan í frá... eða getur hún það ?? Íslandsmeistari  kvenna í Jiu jitsu árið 2017 Later

Höfuð herðar hné og tær... og mjaðmir !

Haldiði ekki að frúin hafi farið út að hlaupa áðan. Í fyrsta sinn síðan ... ööö man ekki, alla vega eftir krossbandaslit. Fyrsti markvissi hlaupatúrinn var sumsé í dag. Hljóp ekkert allan tímann, enda var það ekki planið. Hljóp samt alveg rúmlega helming leiðarinnar sem taldi 5KM. Hnéð? Það hvíslaði... þú getur þetta krúttan mín, ekkert mál. Mjaðmirnar ? Þær loguðu vítislogum og ÖSKRUÐU ... Gleymdu þessu druslan þín, þú átt ekki séns. Svo nú þarf ég bara að ákveða hvernig ég ætla að halda hnénu þokkalegu áfram og þagga niður í þessum mjöðmum. Einhver ráð ? Later

Trölli

Ég hef í gegnum tíðina stundum haldið því fram að það sé eitthvað í vantinu hér í Mosó. Börnin mín fæddust ekki stór, enda komu þau bæði mánuði fyrir tímann - þá voru þau tilbúin í lífið. En þegar þau komu í heiminn þá stækkuðu þau hratt. Hafa bæði alltaf þótt frekar stór. Hún kannski áberandi meira en hann. Í dag er drengurinn orðinn þokkalega hávaxinn... eða svona eins og honum þótti nóg. Þriggja ára sagði hann mömmu sinni að hann ætlaði að verða stærri en mamma en minni en pabbi... hann stóð við það. En hann ákvað að stækka alla vöðva líka, þannig að hann er töluvert þykkari en karl faðir sinn, talaði ekkert um það þarna um árið - þannig að nú er að viðhalda ósköpunum og æfir hann því Olympískar lyftingar af krafti (pun not intended - er bara svona fyndin). Honum gengur svona ljómandi vel, svo vel að reyndir menn hæla honum í hástert og tala um að hann sé þvílíkt efnilegur, svo mikið að þeir eiga ekki orð. Um helgina hefur bæjarhátíðin "Í túninu heima" hér í M...

Nefni engin nöfn...

En fyrsti stafurinn er Baldvin Hansson ! Later