Ég fór á fund hjá Korpu um daginn - fastir liðir þar eru hvatning í upphafi fundar og lokarorð... já nákvæmlega... í lok fundar. Ég var beðin um að vera með lokaorð á síðasta fundi. Stef fundarins var "Allt fyrir ástina" og þá skrifar maður út frá því. Hér eru lokaorðin mín frá síðasta fundi: Allt fyrir ástina Það er hægt að segja að ástin sé límið sem heldur öllu saman. Ást getur verið alls konar og það er mismikið sem við gerum fyrir ástina... það fer eftir hver á í hlut ekki satt? Það eru sennilega fá eða engin takmörk fyrir því hvað við gerum fyrir börnin okkar, en meiri takmörk á því hvað við gerum fyrir aðra sem við þó elskum mikið. Ef við einbeitum okkur að rómantísku ástinni þá rakst á smá texta sem mig langar að lesa fyrir ykkur því mér finnst hann lýsa ágætlega þeirri ást sem flestir leita að, en kannski færri finna í raun. Svona lýsti Heilagur Ágústínus frá Hippó ástinni fyrir syni sínum á 4. öld eftir krist. Ástin Ást er tímabundin bilun. H...