Fara í aðalinnihald

Færslur

Viðkvæmni

Ég varð eiginlega alveg bit í gær - las póst á fb þar sem vinsamlegast var beðið um að fólk væri ekki að plata með þykjustu óléttu á fb sem aprílgabb... af því það er svo voðalega erfitt og sárt fyrir þá sem ekki geta átt börn. REALLY ? Ég missti hökuna niður á bringu... en var kannski ekki beint hissa miðað við allt og allt undanfarin ár. Það má bara ekki gera grín að neinu lengur né gera nokkuð sem á einhvern hátt getur farið fyrir brjóstið á einhverjum hópum eða einstaklingum. Fólk... í alvöru, voðalega eru allir brothættir. Ég viðurkenni fúslega skilningsleysi mitt á að finnast það vera aprílgabb að feika óléttu 1. apríl á fb. Finnst það ekkert fyndið og afskaplega slappt aprílgabb. 1. apríl gengur ekki út á að ljúga að fólki. Það gengur út á að láta fólk hlaupa apríl. En ef einhverjum þykir það sniðugt þá bara gerir hann það. En að það særi svo voðalega þá sem eiga erfitt með að geta börn ??? Örugglega satt og rétt, en hvað með þá sem í alvöru eiga von á barni? Mega þeir...

Bíllaus... til frambúðar

Litla skottan mín er komin með bílpróf. Það er bara þannig... bæ bæ bíll ! Það er auðvitað standard joke að vara aðra ökumenn við en ég er ekki að grínast. Við foreldrar hennar höfum ekki beðið með eftirvæntingu neitt. Bróðir hennar fékk bílpróf fyrir 3 árum og við vorum pollróleg sko. Henni fannst hann aðeins of rólegur og vildi meina að hann keyrði eins og Ross í Friends - sumsé ekki mikið um læti neitt. Hentaði okkur foreldrum vel. Árið 2004 varð okkur föður hennar ljóst að hún myndi líkjast sumum í fjölskyldum okkar (ekki okkur auðvitað - við erum spök) Við vorum í Kópavogi og hún var farþegi í bíl, æ þið getið metið þetta bara sjálf svo sem... Svipurinn segir allt sem þarf... "fæ ég ekki að keyra?" Ok hún sætti sig við að vera farþegi en, stjórnaði alveg og tók fullan þátt í að keyra allt í klessu  Og var mjög virk að finna fórnarlömb  Engin samúð með þeim sem fengu að finna fyrir því  Akkúrat engin...  Í alvöru - við hlógum líka... .....

Háleit markmið helgarinnar

Fór í líkamsrækt í gær - fyrsta sinn í alla vega mánuð. Hef talið mig löglega afsakaða en samt haft á bakvið eyrað að ég get vel tekið efri partinn - hendur, maga, bak kannski. Það var hlegið að mér um daginn er ég nefndi það að nú væri ég nauðbeygð til að einbeita mér að efri partinum. Djókið er að margir einbeita sér kannski fullmikið, og jafnvel eingöngu að þeim hluta líkamans. Það lúkkar ekki endilega vel sko - ég verð að viðurkenna áhyggjuleysi mitt af því að líta svona út... nokkurn tímann. Held að ofurmjaðmirnar láti aldrei baka sig í svona - þó ég myndi æfa eins og ræktarrotta daglega og bryðja stera ofan í það - held þær myndu samt alveg halda í við mig. En ég skakklappaðist sem sagt í Laugar í gær og lét sjá mig í stóra salnum. Þar var alls konar fólk að hamast í alls konar tækjum og rykkja upp alls konar lóðum. Ég varð pínu öfundsjúk er ég sá þá sem gátu brúkað hlaupabrettin, hjólin, stigana og fjölþjálfana. Vön að byrja þar og hita pínu upp áður en ég létti vel á tæk...

It´s that time again

Hér heyrist stundum - "Í alvöru ég ryksugaði fyrir korteri - nei... sko... í alvöru" Fólk heldur að við séum að grínast - við grínumst ekki með svona - þetta er löööngu hætt að vera fyndið. Þau eru bara hérna ennþá af því þau eru svo sæt, og krúttileg og þau halda okkur í formi og nenna endalaust að leika við okkur  og við elskum þau endalaust - það er eina ástæðan. Dóttir mín dundaði sér við að plokka undifeldinn (sem er að springa undan yfirfeldinum) á Leo í kvöld. Við það eignuðumst við annan hund. Við höfum ákveðið að kalla hann Fluffy, okkur þótti það við hæfi. Enginn hundur slasaðist við gerð nýja hundsins og mér þykir leitt að tilkynna að það sér ekki högg á vatni. Hann er ennþá eins og tættur flækingur og nóg er af efni í fuuullt af svona Fluffy hundum. Svo bíða hin á kantinum - þannig að ef einhver vill svona hvítan Fluffy, bara láta okkur vita. Tekur um þrjár mínútur að útbúa hann. Og það er bara af því að við þurfum að móta efnið í hund. Later (ef ég ...

Aldrei að gefast upp...

Elska svona - alvöru fyrirmynd Minnir mig líka pínu á þegar KEB keppti í skólahreysti þarna um árið, í hraðabrautinni - náði að loka hurðinni á undan þrátt fyrir að gaurinn í hinu liðinu hefði haft forskot allan tímann - aldrei að gefast upp, það er ekkert búið fyrr en það er búið... Later

Man-flu

Held ég sé með´ana :/ smá döh, þreytt og hálsbólga - nothing much... en langar að væla og láta vorkenna mér voðalega Later

Í ruglinu

Fór að spegla mig í dag... í Mjóddinni. Fékk Kæruleysis sprautu og mátti ekki keyra sjálf heim, var skutlað á staðinn. Var búin að plata systur mína til að koma og sækja greyið þegar ég væri búin. Svona var samtalið okkar er ég var NÝKOMIN á hvíldarstofuna... Þannig var það nú... hún kom inn til mín og ég svaf klukkutíma á meðan hún sat yfir vitleysingnum. Svo losnaði hún fljótt við mig og ég fór á flakkið að græja og gera. Dauðfegin að þetta virkar ekki eins og að vera svæfð - meikaði ekki heilan dag í flökurleika og ógeð. Later