Föstudagurinn var frekar busy og eins og venjulega fór tímaplanið mitt úr skorðum. Alls konar sem ekki er gert ráð fyrir og annað sem tekur kannski lengri tíma en áætlað var. Enn eitt dæmi um athyglisbrest minn og skipulagshæfileika: Fór að taka úr þvottavélinni, setti blauta þvottinn í körfuna. Og ég man ekki af hverju ég fór fram, en áður en ég vissi af var ég að taka úr uppþvottavélinni þegar ég hugsaði... var ég ekki að taka úr þvottavélinni? Svo ég fór inn í þvottahús og setti á snúrurnar úti svo það myndi þorna strax. Þvoði fimm vélar þennan dag, allt sett út á snúrur... og allt komið saman brotið inn í skápa um kvöldi. Elska svona brakandi þurrk þannig að hægt sé að klára þvottinn samdægurs. Ég ætlaði í Skorradalinn um kvöldmat og þetta var að ganga ágætlega... en svo bara flaug tíminn og aukaverkefni bættust á listann. Þannig að ég lagði ekki af stað fyrr en um 23:30, en ákvað að drífa mig vitandi að annars myndi ég ekki leggja af stað fyrr en undir hádegi næsta dag. Það ...