Fara í aðalinnihald

Færslur

I shit you not !

Á rápi okkar hjóna í dag (kem betur að því seinna) segi ég - "Ég yrði brjáluð ef nágrannarnir settu upp blikkseríu í glugga hjá sér - ímyndaðu þér Gumma og Hörpu setja það í glugga hjá sér fyrir okkur til að bilast á." Svo sagði ég "Ok sko þessar sem svona breytast rólega á milli lita eru í lagi - en hitt er bara svo geðsjúkt eitthvað" Kem heim út Ikea (lofa segi frá því betur seinna), beygi inn í tangann og GETTU FOKKING HVAÐ! Nýi nágranninn á 2 er kominn með FOKKING VANGEFNA ÓGEÐSLEGA SNARBILAÐA jólaseríu stillt á manic mode í gluggann hjá einhverju krakka kvikindinu. Þetta þarf ég að horfa á út um eldhúsgluggann hjá mér og út um gluggann í stofunni - ÞAÐ Á AÐ BANNA ÞETTA HELVÍTI ! I shit you not - ég verð á kleppi í kringum jól og áramót, ef ekki fyrr, úr pirringi yfir smekkleysi mannkynsins. Later

Nördaval

Erum á einum bíl þessa dagana (þar til Gummi bjargaði okkur í gærkvöldi). Í gær fékk ég ping á skype, hvort ég væri kannski á leið út ? Jú ég á leið út, þurfti að ná í hráfóður, sem ég var skíthrædd um að gleyma að sækja. Hentaði svona vel því gaurinn var orðinn svangur og vantaði mat í kroppinn og þurfti í eina verslun, verslun sem ég kalla Nördaval. Svo ég náði í félagann og við fengum okkur að borða, klukkan 14:30, alveg eðlilegt að borða hádegismat þá. Þetta var þá kvöldmatur líka - nóg til í ísskápnum fyrir kríli til að bjarga sér. Svo var haldið í uppáhaldsverslun allra eiginkvenna, eða þannig. BH arkar að afgreiðsluborðinu og þar eru sömu yndislegu gaurarnir og hafa verið þarna allan tímann. Og þeir eru búnir að þekkjast LENGI. Þ.e. Baldvin og þeir. Svo það er mátulega fyndið að heyra þá skensa á hvern annan... það er skotið fast og örugglega, engin grið gefin. Hins vegar dróst heldur úr heimsókninni þangað - mér finnst helst vanta þarna góðan hægindastól fyrir örmagna e...

Erfa jörðina ?

Jörðin er dálítið eins og líkami okkar. Við eigum bara einn og þar þurfum við að "búa" alla ævi. Betra að fara vel með líkamann. Það er eins með jörðina okkar - það er bara ein og við förum með hana eins og skít. Fólk ber mátulega litla virðingu fyrir því hvernig það fer með jörðina. Ég er þar ekki undanskilin. Langar voða mikið að segja að ég sé umhverfisvæn og hugsi áður en ég framkvæmi og vera voða græn. En ég er aldrei nógu græn sennilega. Nota bílinn meira en ég nauðsynlega þarf... þó mér finnist það alltaf nauðsynlegt og alls konar sem ég gæti gert betur, t.d. hér í garðinum okkar - nenni ekki moltukassa og eitthvað - en hendi þó aldrei grasi, það fer allt í beðin hjá okkur og heldur niðri arfa hjá tránum þar sem við erum sjaldan að spóka okkur. Hins vegar spái ég aðeins í umhverfið. Ég hendi í ruslafötur... þó það sé bara lítið tyggjó (sæll hvað mér er stundum orðið illt í kjálkanum af því ég kemst ekki í rusl og tyggjóið löngu ónýtt). Ég endurnýti litla poka hérna...

Pirruð kannski ?

Þetta á bara eitthvað svo vel við... En svona í alvöru.... Og nei ég er ekki með aldurs komplexa... hef aldrei verið og ætla aldrei að detta í þá gryfju ;) Later

Heilræði

Var að fletta dagatalinu hérna í A6 - svo gaman að lesa heilræðin og gullkornin sem fylgja... þetta er þannig dagatal. Fyrir 22. nóvember stendur "Reyndu að snúa neikvæðum hugsunum í jákvæðar og sjáðu hvernig það breytir deginum, anda þínum og lífi." Afskaplega satt og rétt... stundum afskaplega erfitt að sjá það og fara eftir því stundum ! Reynum það samt - held nefnilega að þetta virki í raun svona :) Later

Lítil Dásemd

Fékk þann heiður að sjá um lítinn labbakút í tvo daga. Í gær og í dag - foreldrarnir í smá orlofi til að hlaða rafhlöðurnar í góðra vina hópi. Æ ég væri alveg til í London líka, en það bíður betri tíma - svo margt annað að hugsa núna... framkvæmdir heima eru nóg í bili :) Drengurinn er eins og hugur manns. Brosir bara og er lítið krútt. Ef hann vælir eða sýnir óánægju þá er hann þreyttur eða svangur, svo einfalt er það. Reyndar í morgun er ég reyndi að gefa honum morgunmat var aðeins mótmælt. Og ég skil hann svo vel... hafragrautur er bara vondur - þó banana sé maukað út í hann. Alla vega hafði hann lítinn áhuga á grautnum en var ánægðari er ég maukaði bara banana fyrir hann, svindlaði smá graut með og hann lét það gott heita. Á milli þess sem hann sefur og borðar þá situr hann bara á teppinu sínu, eða liggur, þokkalega sáttur við lífið. Mér finnst litla grettan hans, þegar hann fitjar upp á trýnið, algjörlega ómótstæðileg. KBB vill reyndar meina að hann líti út eins og evil baby þ...

Mýtl

Hef skrifað hér áður um "kvartanir" eiginmannsins á mýtli (hann segir hrotum) eiginkonunar. Það byrjaði fyrir um tveimur árum, kannski rúmlega. Ég neita staðfastlega eins og lög gera ráð fyrir og hann er hættur að kvarta í mér undan þessu. Kannski hann sé farinn að sofa á nóttunni eitthvað eins og ég ráðlagði honum til að losna við óhljóðin í mér. Ég velti fyrir mér hvort hann hafi hringt á lögregluna, og það komið í fréttirnar . En ég sofið svo fast að ég man ekki eftir þessu. Þetta tengist bakflæði reyndar - komst að því í sumar! Later