Fara í aðalinnihald

Færslur

Bylting

Svona lítur heimilið mitt út núna... Búið að rífa upp trén á horninu, grasið af, beðið burt og malbikið af planinu farið. Nú er hægt að fara að leika sér að gera fínt. Þarna kemur gerði fyrir hundana - þ.e. afgirt svæði fyrir þau fyrir framan þvottahús hurðina, nýtt beð - töluvert minna samt, og svo hellur á bílaplanið. Þetta verður svo afslappað þegar þetta er búið. Hleypa hundum út að míga án þess að smella þeim í taum, hægt að leyfa þeim að pústa og kæla sig eftir hlaup og leiki. Ekki gott að taka þau beint inn úr köldu veðri eftir átök. Við erum að tala um byltingu hérna :) Þetta er bara byrjunin. Þegar þetta verður búið þá verður farið í það í rólegheitum að græja hérna inni líka - það verður rosalega góð breyting líka. Hundarnir fara þá LOKSINS úr forstofunni og inni í þvottahús. Þvottahúsið hins vegar verður fært út í bílskúr. Bílskúrinn hverfur - verður notaður í annað héðan í frá. Eins og það er frábært að hafa bílskúr þá er þessi of mjór til að nenna að gey...

Sátt

Sátt eftir góðan dag á Þingvöllum :) Þessir ofurvoffar drógu mig eins og berserkir á keðjulausa hjólinu 10 km og lönduðu 1. sætinu. Þess má geta að keppnin var harðari en ég hef "lent" í áður. Rósa mín sá til þess að ég mátti hafa mig alla við, enda Rökkva ekki vön að slá slöku við og Þrymur gaf henni ekkert eftir. Svo hljóp ég 10 km með Úlfi í canicross eftir hádegi - lönduðum 1. sæti þar líka. Setti persónulegt met um 52 eða 53 mínútur... nenni ekki að gá :) Þannig að ég er alsæl eftir uppskeruna í keppninni :) Hér má svo sjá alla Siberian Express liða verulega sátta eftir daginn - við stóðum okkur öll svo vel :) Later

Manns eigins...

Rifsið græjað í pottinn... svo dundað í að ná safanum úr þessum dásemdarberjum... Svo þegar allt er komið i krukkurnar, þá hefst biðin eftir að sjá hvort þetta hlaupi ekki fínt svo hægt sé að nota þetta almennilega og borða þetta fínerí :) Ég þurfti ekki að bíða lengi - alla vega fimm krukkur sem eru tilbúnar til átu nú þegar... þ.e. er innihaldið í þeim. Þetta er himneskt... það er í alvöru bragð af þessu. Það sem maður kaupir út í búð er ágætt, en það jafnast ekkert á við það sem er heimagert. Því berjabragðið skilar sér í manns eigins framleiðslu. Við mæðgur erum búnar að smjatta vel á þessu hérna og dóttirin er hæstánægð með mömmuna sína núna - þetta er miklu betra en út úr búð :) Later

They do run run run ...

Þeim er hollara að hlaupa í ár Þau gerðu það ekki í fyrra og það var frekar svekkjandi því ég hef verið að kaupa meira af rifsberjahlaupi í ár en ég hef verið að nota á ári áður. Nota þetta á ristað brauð og beyglur og svona. Og það er bara ekki eins gott þetta sem maður fær út í búð, það vantar berjabragðið í það. Svo veit ég að þetta smellpassar svo flott við 55 kílóin af hreindýrakjötinu sem við eigum í frysti. Hlakka til að græja þetta í krukkur í fyrramálið - var að hella því sem var í þeim ofan í kókflöskur. Það verður notað í saft í staðinn bara. Erum búin að vera að drekka saft í kvöld og við mæðgur mjálmum bara yfir dásemdinni. Hrikalega gott stuff. Held að við fjölskyldan verðum ekki lengi að stúta þessum fimm og hálfa lítra (óblönduðum) af saft sem til er síðan í fyrra. Það eru ennþá fullt af berjum úti á trjám - lítur út fyrir að fuglarnir fái að njóta þeirra. Fólk ekkert að notfæra sér uppskeruna með mér í ár. Í fyrra tók ég það sem ég vildi í lok ágúst og ...

Bring it...

Mér verður ekki kalt í vetur svo mikið er á hreinu Ætlaði að fá rauða en þegar ég sá kragann á þessari var enginn spurning að svart væri hið nýja rautt - ég varð litblind á augabragði og er að spá í að sofa í þessari úlpu fyrstu vikuna svona á meðan við erum að kynnast almennilega. Ein í viðbót... Svona verð ég á sleðanum í vetur... það verður snjór - ég er sannfærð um það :) Later

Afmæli í dag...

Þetta litla skott er þriggja ára í dag. Endalaus gleði þessi dásemd, Litli voffinn að verða stór... djók - hann er nú þegar risi :) Later

Sjálfhverfa...

Hér hefur staðið til að henda inn færslu um hreindýraveiðar, sem voru um það bil eitt mesta ævintýri síðari ára hjá okkur hjónum, Reykjavíkurmaraþon, og alls konar færslur um daglegt líf fjölskyldunnar sem ég er sennilega búin að gleyma núna, sem er miður. Núna sit ég hér og á að vera að gera allt annað... undirbúa kynningu fyrir fimmtudaginn, þarf bara að tala í 20 mínútur :/ Eins gott að lenda ekki í tímaþröng með það því ég hef ekki fimmtudaginn til að redda mér - hann er fullbókaður. Er líka að koma verkefnum sem ég hef sinnt í annarra hendur, þannig að viðkomandi viti til hvers er ætlast. Þarf að setja á fund og kynna mér efnið vel áður svo ég geti verið í forsvari nefndar sem ég veit ekki alveg til hvers er ætlast er af mér... er að kynna mér það núna til að komast skammlaust frá þessu. Ég má ekki gleyma að prenta út efni til að koma í hendur á réttum aðilum á fundi á fimmtudag... og já finna þessa aðila til að sinna verkefninu :) Sem sagt á góðri leið með að lenda í flækju með...