Fara í aðalinnihald

They do run run run ...

Þeim er hollara að hlaupa í ár





Þau gerðu það ekki í fyrra og það var frekar svekkjandi því ég hef verið að kaupa meira af rifsberjahlaupi í ár en ég hef verið að nota á ári áður. Nota þetta á ristað brauð og beyglur og svona. Og það er bara ekki eins gott þetta sem maður fær út í búð, það vantar berjabragðið í það.

Svo veit ég að þetta smellpassar svo flott við 55 kílóin af hreindýrakjötinu sem við eigum í frysti.

Hlakka til að græja þetta í krukkur í fyrramálið - var að hella því sem var í þeim ofan í kókflöskur. Það verður notað í saft í staðinn bara. Erum búin að vera að drekka saft í kvöld og við mæðgur mjálmum bara yfir dásemdinni. Hrikalega gott stuff. Held að við fjölskyldan verðum ekki lengi að stúta þessum fimm og hálfa lítra (óblönduðum) af saft sem til er síðan í fyrra.

Það eru ennþá fullt af berjum úti á trjám - lítur út fyrir að fuglarnir fái að njóta þeirra. Fólk ekkert að notfæra sér uppskeruna með mér í ár.

Í fyrra tók ég það sem ég vildi í lok ágúst og þá voru berin orðin of þroskuð og laufblöðin farin af trjánum. Engin græn ber eftir og því ekkert hleypiefni í boði þarna - því fór sem fór. Og lata ég kom mér aldrei í það að plata Eddu til að sjá af nokkrum stikilsberju og bæta úr þessu klúðir. Stikilsber eru náttúrulegt hleypiefni og svínvirkar - búin að prófa það einu sinni - hlaupið stífnaði á meðan ég horfði á það - nýkomið í krukkurnar.

Ætlaði að taka berin um miðjan ágúst núna í ár - er hann búinn ?

Það er búið að vera svo kalt í sumar miðað við nokkur undanfarin ár að berin eru seinna tilbúin en þá. Í síðustu viku sá ég að þau voru ÆÐISLEG og hugsaði með mér að drífa í að sulta úr þessu - hafði engan tíma og búin að vera á taugum að það myndi örugglega frysta áður en ég kæmist í málið.

Heppna ég, ekkert næturfrost ennþá og berin súper fín og ég hef fulla trú á að þetta hlaupi hjá mér í ár... eins og alltaf áður, nema þetta eina skipti. Þá fékk ég stikilsberin sem virkuðu svona fljótt og vel. En þá setta ég þau bara í helminginn af afrakstrinum en ekki hinn helminginn. Vildi sjá hvort þetta myndi virka hjá mér.

Viti menn, um jólin var sá helmingur, án stikilsberja, búinn að hlaupa líka - tók bara smá tíma. Þannig að í raun var þetta í fyrsta sinn í fyrra sem þetta hljóp ekki í þetta fína rifshlaup.

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...