Svona lítur heimilið mitt út núna...
Búið að rífa upp trén á horninu, grasið af, beðið burt og malbikið af planinu farið.
Nú er hægt að fara að leika sér að gera fínt. Þarna kemur gerði fyrir hundana - þ.e. afgirt svæði fyrir þau fyrir framan þvottahús hurðina, nýtt beð - töluvert minna samt, og svo hellur á bílaplanið. Þetta verður svo afslappað þegar þetta er búið. Hleypa hundum út að míga án þess að smella þeim í taum, hægt að leyfa þeim að pústa og kæla sig eftir hlaup og leiki. Ekki gott að taka þau beint inn úr köldu veðri eftir átök.
Við erum að tala um byltingu hérna :) Þetta er bara byrjunin. Þegar þetta verður búið þá verður farið í það í rólegheitum að græja hérna inni líka - það verður rosalega góð breyting líka. Hundarnir fara þá LOKSINS úr forstofunni og inni í þvottahús. Þvottahúsið hins vegar verður fært út í bílskúr. Bílskúrinn hverfur - verður notaður í annað héðan í frá. Eins og það er frábært að hafa bílskúr þá er þessi of mjór til að nenna að geyma bílinn þar inni að staðaldri.
BH er mátulega bugaður yfir þessu öllu saman - alltaf svo miklu meira gaman að vinna heima hjá öðrum og koma svo bara heim í notalegheitin. Ég lofaði honum áðan að ég skyldi ekkert minnast á heitan pott fyrr en næsta sumar ;)
Hundkvikindin verða tekin inn á bakvið við pallinn þar til þetta er búið - shit það er svo leiðinlegt að þrífa 12 loppur í hvert sinn sem þau koma inn úr þessum sandi. Og nú hefur moldin bæst við... það er ekki eitthvað fyrir þolinmóðu mig. Svo þau koma inn á bakvið í nokkra daga eða vikur... eftir því hvað þetta tekur langan tíma - ég er nú að vona að tíminn verði stuttur.
Later
Ummæli