Gott að færa það hér til bókar að Leo var í fyrsta sinn úti í gerði í allan dag með Ronju og Úlfi. Það gekk ljómandi vel og engir árekstrar. Rétt eftir hádegið heyrðist smá ýlfur og gelt í Leo. Ég rauk á fætur og kíkti út. Sá þá bara hann og Úlf standa og horfa út á götu við Leirutangann. Eftir að hafa horft á hann skoppa þarna aðeins og reyna hvað hann gat að láta grindverkið hverfa, áttaði ég mig á því að sennilega væri KEB að koma heim. Í því gekk drengurinn inn í þvottahús. Leo hélt áfram að reyna hvað hann gat að koma okkur hér inni í skilning um að hann vildi heilsa og fá sitt knús. Það gekki ekki nógu vel hjá honum. Hann uppskar aðeins fýlulegt NEI frá húsfreyjunni. Þetta endurtók sig klukkutíma seinna og ég spratt á fætur. Í þetta sinn var það KBB sem var svona áhugaverð. Hann linnti ekki látum fyrr en ég hvæsti á hann nokkrum sinnum. Þá skildi hann að þetta var frekar vonlaust. Það er er verulega svalt að horfa út í gerði og sjá þessa þrjá kjána okkar saman. Miklu skemmt...