Fara í aðalinnihald

Færslur

Sálarkreppa

Fékk þetta í tölvupósti: Hello I want to meet. I'm Mary. I am 28 years old. I need a pen pal. Some information about me: I the clever, beautiful girl. I work. At leisure I walk on an evening city. I go on parties, discos. I kind am gentle the tender. I search for the love. I will love you and I will be with you always. I would like to see next to each other: Young,nice,clever,succesfull,kind man(22-35years),which will respect me,my interests and love me. Here's my address: mar_1981@yahoo.com Mary Varð miður mín þegar ég las í lok bréfsins að hún vill hitta ungan, góðan mann á aldrinum 22 - 35. Ég hélt að ég væri komin þarna með eilífðarvinkonu sem myndi deila með mér gleði og sorg um ókomna tíð. Í örvæntingu minni mundi ég eftir frasanum "konur eru líka menn". En mundi þá eftir aldurstakmörkunum - damn. Spáði svo smá stund í það hvort ég gæti ekki bara logið til um 2-3 ár... en tárin byrjuðu að falla er ég ákvað að ekki væri gott að byrja svona fallegt samband ...

Gönguferð

Fór í gönguferð seinnipartinn - bara hérna í kring. Of mikil þoka nær fjöllunum svo ég tók ekki sénsinn. Ákvað að skella mér með allar þrjár svo við fengjum allar langan góðan göngutúr. Erfitt að skipta þeim niður - þá fæ ég mestu hreyfinguna ekki þær. Þær voru svo káta í byrjun og toguðu grimmt og ákveðið. Tók verulega á lærin hérna niður frá húsinu. Ég verð klárlega vel mössuð í fótunum eftir þessa viku. spurning um að finna eitthvað til að lyfta svo það verði eitthvað jafnvægi í kroppnum :o) Annars liggja þær hérna bara eins og hráviði um öll gólf núna og ég hangi fyrir framan sjónvarpið - gæti ekki verið betra. Fólk spyr hvort mér leiðist... er það hægt með þennan félagsskap sem ég hef :o) - Vitandi líka að eftir mér bíður skemmtilegt fólk heima í lok ferðarinnar - neibb mér leiðist ekki :o) Later

Bestur

Fékk tölvupóst áðan frá Icelandair - það gerist reglulega og er því varla í frásögur færandi. Nema þá helst vegna þessa að þessi ferð sem þeir eru að auglýsa er SÉRFERÐ FYRIR MIG. Já já það er bara þannig - fyrir mig og mína líka. Eina sem ég sá í þessu fréttabréfi þeirra var GLASGOW FYRIR FÓLK Á BESTA ALDRI. Sérsniðin ferð fyrir eldra fólk. Eigum við ekki aðeins að róa okkur - er ekki einu sinni orðin fertug. Grunar að þetta sé nú bara svona almennt sent á alla, verð að vona það. En þeir ættu að vita að það er viðkvæmt fólk þarna úti. Fólk sem gæti hrokkið upp af við þá tilhugsun að vera komið á "besta" aldurinn. Ef það hrekkur ekki í kút við þær fréttir að vera á besta aldrinum þá gerist það örugglega þegar það les verðið sem ferðirnar eru á. Nokkurra daga ferðir á hundrað þúsund og meira á manninn. Oldie

Ríki Vatnajökuls

Ákvað í fljótheitum að skella mér austur og gerast hundahirðir í viku. Væri alveg til í að vera hér í þær tvær vikur sem um var beðið en var búin að gera aðrar áætlanir 15. og 18. september. Ég sit hér á Rauðabergi á fallegu heimili í yndislegu umhverfi - umvafin þremur drottningum sem hér búa. Þær heita Sól, Mánaskin og Jörð. Að sjálfsögðu eru þær allar af hinu frábæra Siberian Husky kyni hunda. Latínó - höfðinginn á heimilinu - var því miður sendur í útlegð þar sem tvær tíkanna eru sérstaklega móttækilegar fyrir ástleitni höfðingjans. Ég ákvað að yfirgefa börn og bú í þeim tilgangi að setjast niður og einbeita mér að því að koma ritgerðinni minni í farveg og byrja almennilega að vinna í henni. Hér er ég EIN ásamt hundunum þremur og hef það stórfínt. Þær sjá um að ég hreyfi mig daglega svo ég mygli ekki hérna og hangi bara inni. Verst að í morgun var skuggalega mikil rigning. Ekki spennandi að drífa sig út með þrjá loðbolta og koma svo inn með þær allar blautar og fínar. Svo ég hinkra...

skil ekki alveg...

Stjörnuspáin fyrir Tvíburamerkið á mbl.is í dag: Þú hefur margt til brunns að bera og átt auðvelt með að létta öðrum lífið og gefa af sjálfum þér. Hugsaðu nýjar hugsanir og þá mun allt breytast. ??? Ef tvíburinn hefur margt til brunns að bera og á auðvelt með að létta öðrum lífið og gefa af sjálfum sér - af hverju í ósköpunum ætti hann að vilja láta það breytast með nýjum hugsunum? Bara svona að spuglera :o)

Ungur nemur...

Heyrði einu sinni sagt að börn heyra ekki það sem foreldrar þeirra segja því það sem foreldrar þeirra gera hljómar svo HÁTT. Varð vitni að því áðan, og hef séð þetta áður, þegar móðir og barn hjóluðu að Leirutanganum og þurftu að komast yfir götuna. Við stoppuðum og biðum svo þau kæmust yfir. Hmmm, mamman lét krakkan fara af hjólinu og leiða það yfir götuna. Mjög rétt, best að hægja á þessum krílum áður en þau fara yfir götu svo þau átti sig betur ef það eru að koma bílar. EN MAMMAN? Hún fór ekkert af sínu hjóli - hún HJÓLAÐI YFIR GÖTUNA sjálf. Eru einhverjar líkur á því að þetta barn læri að best sé að leiða hjólið yfir götuna? - Ekki telur mamma þess best að leiða hjólið yfir götuna! Ég verð hissa ef þetta barn á ekki eftir hjóla þvert yfir án þess að líta til hægri né vinstri þegar mamman er ekki með til að skipa því af hjólinu. Mér finnst þetta bera vott um tvískinnung hjá fullorðnum - kenna börnum eitt en framkvæma svo allt annað sjálf. Held að maður kenni börnum mest með því að g...

Til hamingju Ísland...

Geri aðrir betur gott fólk - svona á þessum síðustu og verstu :o) 22 ár í dag, legg ekki meira á ykkur. Legg samt meira á mig því ég plana önnur 22 og meira til. Lóa + Baldvin = 1 strákur, 1 stelpa, 1 tík og 1 rakki Ekkert planað í dag frekar en oft áður við svona "stórhátíðir" - plönum bara að gera eitthvað skemmtilegt í kvöld með hundum og skemmtilegu fólki :o) Later