Fara í aðalinnihald

Færslur

Blómálfur

Þetta er allt að gerast - búið að ná í sláttuvélina og garðhúsgögnin upp á loft í bílskúrnum. Búið að slá grasið. Nú þarf ég að bera á stólana og borðið og ætla líka að sulla á pallinn smá viðarvörn. Svo þarf að græja blóm í pottana - nenni ekki í beðin alveg í bili. Og aðalmálið - BÚIN AÐ KAUPA GRILL - jább, það verður grillað í sumar. Gamla grillið var alveg búið að gefa upp öndina - það loga bara eldar á þremur stöðum. Þannig að það er hægt að kveikja í kjötinu til að elda það. Ekki alveg að virka. Svo þegar maður lokar fyrir gasið þá þarf maður að blása á síðustu logana svo þeir slokkni alveg. Alveg sama hvað ég reyndi að lappa upp á greyið það var bara orðið gamalt og ekkert hægt að laga það neitt. Enda veit ég ekki hvernig útlitið á grillinu, sem ég var alltaf að laga, ætti að hafa áhrif á matseldina sjálfa? Reyndar skipti ég um steina líka og það allt en þetta var bara ekki að ganga. Lifi ekki annað sumar án þess að grilla oft og mikið :o) Þannig að afmælisgjöf okkar hjóna til h...

Út í góða veðrið

Ég gefst upp - nú fer ég út. Það er of gott veður til að hanga inni og taka til. KBB verður bara að fyrirgefa það og hjálpa mér með hennar herbergi :o) Ég ætla að vera úti í dag og fá lit á kroppinn. Ætla að taka til í "herbergi" LaVoffs í dag. Þrífa gerðið og fylla upp í holur og raða steinum og svona. Ekki veitir af þau eru ansi dugleg í uppgreftri og steinaflutningum. Ég vaknaði mun skárri í hálsinum í morgun og vona að það verði ekki verra þó ég njóti veðurblíðunnar í garðinum í dag :o) Later

Hvítasunnudagur

Ég fæddist á hvítasunnudegi árið 1973 og átti svo 12 ára afmæli á hvítasunnudegi líka. Bíð spennt eftir að páskarnir verði extra seint eitthvert árið svo ég geti átt afmæli á hvítasunnudegi aftur. Hef nú ekkert athugað hvort það verði eitthvað - það kemur bara í ljós. Þessum fallega degi hef ég eytt inni hjá mér - hóstandi og að taka til hér og þrífa. Allt orðið glimmrandi fínt í húsinu. Nema Karlottu herbergi sem ég lofaði víst að umturna meðan allir væru í burtu. Reyndar búin að þrífa skápana inni hjá okkur hjónum og losa tvær stórar skúffur í kommóðunni okkar til að koma fötum drottningarinnar fyrir. Hún þarf víst eitthvað fleiri hirslur fyrir fötin sín - hefur eitthvað stækkað undanfarin ár. Þannig að nú hefur hún ekki afsökun lengur fyrir að hafa föt út um ALLT. Nú á hún stað fyrir þau. Og svo fór held ég helmingurinn yfir götuna - heill ruslapoki af fötum sem hún er vaxin upp úr. Nei það er ekki langt síðan ég fór með föt yfir. Nú ætla ég að sópa yfir pallinn og henda FatBoy-inum...

Þegjandi hás

Í gær ákvað ég að vera heima um helgina. Planið var að skella sér á Vatnajökul ásamt nokkrum öðrum vitleysingum. Dogpeople - ferðin var farin til að láta hundana draga sleða, skíði, eða hvað sem rennur. Ég ákvað í gær að ég yrði heima en BH fór með hundana og Alexandra heldur honum félagsskap í bílnum. Sparta sér um að halda okkar hundum á tánum í bílnum. Hún er 10 mánaða með endalausa orku og vill STÖÐUGT leika sér. Hún skilur ekki þeirra rök fyrir að horfa bara út um gluggann. Plássleysi er ekki rök í hennar huga. Alveg að komast út er heldur ekki rök. Henni finnst að þau eigi að hoppa og skoppa þarna aftur á því plássi sem þau þó hafa og útsýnið er bara ekki svona frábært í umferðinni :o) BH hringdi reyndar í mig í gærkvöldi og baðst vægðar. Spurði af hverju ég hefði eiginlega sent hann einan með henni. Hann á ekkert inni hjá Alexöndru - hún er með munninn fyrir neðan nefið... A: Hvað er þetta? B: Tannþráður A: Til hvers þarftu hann? B: Með svo skakkar tennur [Það festist auðveldleg...

Til hamingju Ísland...

Til hamingju með afmælið litla systir - fallegur dagur fyrir fallegustu konuna sem ég þekki :o) Langar ekki að setjast á Þjóðskjalasafnið í þessu góða veðri - nú þarf maður að venjast því að vera eins og allir hinir og horfa á góða veðrið út um gluggann :o/ Ég svindlaði samt aðeins og fór út með hundana í göngutúr áður en ég mæti á Laugaveginn. Sá að sennilega verður þetta bara til hádegis og svo jafnvel rigning í kvöld. Fær mig til að langa að fara núna út í garð og hreinsa til og njóta veðursins og vinna seinnipartinn og í kvöld. Verst að vera ekki með allar heimildir af bókasafninu hérna heima. Verð bara að drífa í þessu svo ég geti farið að vinna heima - þá gæti ég setið hérna úti á palli. Það væri flott, hef oft verið hérna úti að læra eða lesa :o) Later

Ehe...

Sváfum yfir okkur fjölskyldan í fyrsta sinn í mörg ár bara held ég. Man bara ekki eftir að hafa grjótsofið svona rosalega. Er alltaf með símann minn og vekjaraklukku til að koma mér framúr á morgnana. Núna virðist ég hafa slökkt á báðu án þess að muna nokkuð eftir því. Bara svaf róleg áfram. Er svo heppin að eiga góða nágranna og Gummi hringdi hérna yfir til að athuga hvort ekki ætti að ræsa liðið og hefja daginn. Dætur hans hafa sennilega komið hérna yfir og ekki fengið neitt svar og sagt pabba sínum frá því. Þannig að á slaginu átta var sprottið á fætur og allir höfðu sig til á mettíma - sennilega best að ég haldi áfram og reyni að komast út í dag. Sat föst heima í allan gærdag. Hundpirruð að komast ekki úr húsi en notaði daginn til að þrífa hérna hjá okkur. Ætla að sjá hvort ég komist ekki út í dag svo ég geti setið á Þjóðskjalasafninu eitthvað. Væri svo til í að mega kippa gögnum þaðan með mér heim... en það er víst borin von :o) Langur dagur framundan og best að hefjast handa... L...