Fara í aðalinnihald

Blómálfur

Þetta er allt að gerast - búið að ná í sláttuvélina og garðhúsgögnin upp á loft í bílskúrnum. Búið að slá grasið. Nú þarf ég að bera á stólana og borðið og ætla líka að sulla á pallinn smá viðarvörn. Svo þarf að græja blóm í pottana - nenni ekki í beðin alveg í bili. Og aðalmálið - BÚIN AÐ KAUPA GRILL - jább, það verður grillað í sumar. Gamla grillið var alveg búið að gefa upp öndina - það loga bara eldar á þremur stöðum. Þannig að það er hægt að kveikja í kjötinu til að elda það. Ekki alveg að virka. Svo þegar maður lokar fyrir gasið þá þarf maður að blása á síðustu logana svo þeir slokkni alveg.

Alveg sama hvað ég reyndi að lappa upp á greyið það var bara orðið gamalt og ekkert hægt að laga það neitt. Enda veit ég ekki hvernig útlitið á grillinu, sem ég var alltaf að laga, ætti að hafa áhrif á matseldina sjálfa? Reyndar skipti ég um steina líka og það allt en þetta var bara ekki að ganga. Lifi ekki annað sumar án þess að grilla oft og mikið :o)

Þannig að afmælisgjöf okkar hjóna til hvors annars kemur í hús á morgun samansett og heimkeyrt - hlakka mikið til. Gamla grillið verður kvatt í kvöld og notað í hinsta sinn. Ætlum að grilla pylsur og fá skemmtilegt hundafólk í heimsókn. Smá myndakvöld frá Vatnajökulsferðinni!

Litla drottningin mín ætlar að mæta á skólaslitin hjá tónlistarskólanum á eftir. Hún fær viðurkenningu fyrir að hafa lokið 1.stigs prófi á fiðlu og svo var hún beðin um að spila líka lagið sitt.

Hún spilaði á tónleikum um daginn frumsamið lag. Svava vinkona hennar spilaði undir á píanó og Katla vinkona hennar las textann sem KBB samdi við lagið. Svo spilaði litla mín lagið sitt á fiðluna sína. Þetta vakti lukku og athygli. Skólastjórinn bað því um að þær stöllur myndu flytja atriðið sitt á skólaslitunum á eftir :o)

Yndislegur dagur og yndislegt veður - fór ekkert í dag að vinna í ritgerðinni minni. Smá þröskuldur, þ.e. búin með það sem ég ætlaði að klára og nú þarf að skipuleggja sig aftur og meira. En það er bara svo gott veður - spá í að skrifa kennaranum bréf og útskýra að það sé komið SUMAR og ég mikið spennt fyrir garðinum mínum þá. Sérstaklega í svona góðu veðri. Ég er ekki viss um að ég fái mikla samúð og enn vissari að ég fæ enga samúð frá skattinum sem heimtar sitt í byrjun júní :o/

Þarf eitthvað að fara að skipuleggja þetta vel og vandlega og vera dugleg og klára þetta allt saman bara :o) Svo er spurning hversu miklu ég fæ ráðið um minn tíma í sumar, það verður bara að koma í ljós :o)

En nú ætla ég að gera tilbúið fyrir kvöldið og drífa mig á skólaslitin og dást að fallegu dóttur minni !

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...