Fara í aðalinnihald

Færslur

Eeeendalaust

Vorum að baða hundana - smá undirbúningur út í skúr. Plast sett yfir hurðarennurnar í loftinu, plast sem nær niður í gólf. Svo er meira plast sett til að loka alveg á móti bílskúrshurðinni. Þannig er komið smá "herbergi". Þetta gerum við til að hárin af hundunum fari ekki út um ALLAN skúr. svo settum við plötu upp á búkka - skrúfuðum hana fasta til að þau velti ekki. Svona á allt að vera ready hjá svona amatörum eins og okkur. Ronja var tekin fyrst og skellt upp á borð. Hún er svo dugleg þessi elska. Lætur þetta yfir sig ganga og segir ekki múkk. Bíður spök eftir að við klárum þessi ósköp. Henni finnst þetta ekki alveg skemmtilegt og er þeirri stund fegnust þegar við hleypum henni niður eftir blásturinn. Blésum hana og krossuðum fingur að einhver hár yrðu eftir á kroppnum. Og viti menn hún er bara svona ljómandi fín og flott litla drottningin mín. Það er svo endalaust verkefni að blása þessa hunda þurra. Þið ættuð bara að sjá hversu ofurræfilsleg þau verða þegar þau eru svona...

Snjór...

Er gjörsamlega að fríka út yfir þessum snjó - eins og karíus og Baktus í nammilandi. Er bara svekkt ef hann fer strax aftur - einhver sagði að á sunnudaginn yrði komin hláka. Er ekki alvega að meika það hins vegar. Best að nota tækifærið á morgun og veltast aðeins í snjónum með hundum og börnum svo maður missi ekki af þessu. Svo er ég með svipuna á BH að klára þennan sleða... Það verður hrikalega gaman þegar hann er tilbúinn. Verst að það væri best að vera með svona 4-6 hunda til að draga, spurning hvort við þekkjum ekki nóg af fólki núna til að lána okkur bara það sem uppá vantar ;o) Later

BROS

Mátulegt á mig að þurfa að rjúka út í morgunsárið og alla leið til Höfuðborgarinnar. Loksins þegar snjórinn lætur sjá sig og enn er skafrenningur og lélegt skyggni - skilyrðin sem ég hef beðið eftir í vetur - þá þarf ég að drífa mig út. En ég kvarta ekki, umferðin gekk hægt en hún gekk vel. Allir bara í rólegheitum að mjakast á áfangastað. Minn áfangastaður var Mjóddin. Þar hefur aðsetur tannréttingalæknir einn sem séð hefur um að róla sér í veskinu mínu undanfarin svona fjögur ár. Sonurinn var að mæta í þriðja tímann í þessum mánuði og nú var spenna í loftinu :o) Komið að því að LOSNA VIÐ teinana í efri gómi. Það tók okkur rétt tæpan hálftíma að keyra þessa vegalengd sem annars tekur okkur um 10 mínútur á venjulegum degi - ekki kl. átta að morgni til reyndar. En við náttúrulega gerðum ráð fyrir því og komum því á réttum tíma. KEB er svo lukkulegur með að losna við vírana - skrýtið að strjúka yfir tennurnar með tungunni og ekkert að trufla - allt svo mjúkt og fínt. Sérstaklega var hann...

How sad...

Sjaldan sem ég kippi mér upp við að lesa um stjörnurnar sem eru með allt í klósettinu vegna eigin bjánaskaps. En í þetta sinn varð ég pínu leið. Málið er að ein flottasta söngkona 9. áratugarins er gjörsamlega búin á því. Hefur ekki verið mikið í sviðsljósinu síðustu árin. Nema þá helst vegna fíknefnaskandals af og til. Mér finnst leiðinlegt að sjá að svona hæfileikarík og falleg kona skuli tapa öllu niður. Horfði á þetta myndband og vorkenndi henni bara. Og til að toppa ömurlegheitin þá hefur hún látið blása í vörina á sér eins og flestar stjörnur virðast gera þessa dagana. OJJJ það er svo glatað að líta út eins og Andrés önd - málið er að allar þessar konur sem láta fylla í varirnar á sér eru töluvert betur útlítandi áður en það er gert. Whitney Houston á kannski eftir að gera góða hluti í framtíðinni en hún þarf alvarlega að taka sig saman í andlitinu áður en af því verður. Nú er ég engin sérstakur aðdáandi hennar. En þótti hún samt syngja nokkur góð lög á sínum tíma og þetta lag á...

STEINN

Við BH ákváðum að drífa okkur á Esjuna í morgun kl. 11. Linda og Nala komu með okkur og svo Freyr og Skuggi. Skuggi er þriggja ára Tjúi og hetjan gekk meira og minna alla leið upp og niður í flottu lopapeysunni sinni :o) Hann var alla vega sprækari en ég - púff - var að gefast upp í mesta hallanum. Fórum erfiðari leiðina upp en auðveldari niður. Eins gott því annars væri ég sennilega að skafa BH upp úr hlíðunum núna. Ég fékk að hafa Úlf efri partinn á leið upp. Minn dáldið grey og vantaði aðstoð. Stóð á blístri og lappirnar sögðu nei nei nei í sífellu. Magnað hvað lærin á mér eiga bágt alltaf þegar ég tek á því. Búið að vera svona síðan um 2006. En fólk - ég komst upp að Steininum fína og skrifaði í gestabókina. Það var fyrirfram ákveðið að staðnæmast þar og halda svo niður aftur. Erfitt að fara alla leið með hundana skilst mér - auðveldara kannski í sumar. Á leið niður skiptum við BH um hund, Ronja mín, drottningin og yndið mitt togar ekki eins og Úlfurinn. BH kallaði hana síberíusvin...

Stjörnumerkin...

Ég hef nú ekki spáð mikið í stjörnumerki og persónur fólks. En eins og flestir ef ekki allir þá hef ég skemmt mér yfir þannig vangaveltum samt. Þetta fékk ég í tölvupósti og fannst ansi sniðugt því ég gat alveg séð nautin, vogina og vatnsberan í hvelli og svo náttúrulega ljónið og... alla vega hló dálítið að þessu... Lesið þetta og hugsið um fólkið í þessum merkjum um leið. Hvað þarf marga hrúta til að skipta um ljósaperu? Bara einn, en það þarf margar perur. Hvað þarf mörg naut til að skipta um ljósaperu? Ekkert, nautunum finnst ekkert gaman að breyta neinu. Hvað þarf marga tvíbura til að skipta um ljósaperu? Tvo líklega. Þeir bíða helgarinnar, en það endar á því að ljósaperan er miðja athyglinnar, talar frönsku og skín uppáhalds lit hvers og eins sem kemur inní herbergið. Hversu marga krabba þarf til að skipta um ljósaperu? Bara einn, en hann þarf svo að fara í meðferð til að komast yfir atburðinn. Hversu mörg ljón þarf til að skipta um ljósaperu? Ljón skipta ekki um perur, í me...

Doktor Saxi...

Fór með soninn til læknis í morgun - krílin í vetrarfríi og því upplagt að nota morgunin í svona verkefni. Hann var á æfingu á miðvikudaginn, þau eru að æfa fyrir mót sem verður á sunnudaginn. Þessi vika var ansi þétt hjá honum því hann var að ljúka við hópverkefni ásamt nokkrum bekkjarfélögum, tónleikar á miðvikudaginn og æfing í fimleikum sem hann vildi alls ekki missa af. Miðvikudagurinn var því dáldið brjál. Skóli, heim að vinna með strákunum, 17:15 - æfing með píanistanum, tónleikar kl. 18, og við búin að fá í gegn að hann fengi að spila fyrstur til að geta hlaupið út strax og beint á æfingu sem byrjaði 16:30, en átti að ljúka kl. 19:00. Þannig að hann gat þá mætt í smá stund. Ég sat og fylgdist með þeim og sá drenginn skoppa af trampólíninu svona þrjá metra eða meira upp í loftið, kuðla sig saman í bolta, snúa sér í tvo hringi, opna kroppinn og reyna að lenda. Lendingin var ekki alveg komin og hann var að vinna í henni. Lenti eitthvað illa úr einu stökkinu með álag á annað hnéð o...