Fara í aðalinnihald

Færslur

Barn - hundur?? það er spurning

Eigum við eitthvað að ræða veðrið - nei kannski bara ekki. Læt nægja að segja að ég er eins og steiktur kjúklingur - gjörsamlega að farast úr hita á leið í garðpartý til Eddu. Við KBB fórum áðan saman til læknis - frysta vörtu, Again. Við lítinn fögnuð litlu konunar sem skældi af sársauka greyið. Hún fékk aftur eyrnalokka í verðlaun fyrir dugnað - jú sko hún hefði alveg getað sagt þvert nei bara, reyndi það líka fyrst. En eftir að læknirinn útlistaði aðgerðina sem þyrfti ef endemis vörtukvikindið kæmist undir þumalfingursnöglina þá lét hún undan þrýstingi móður sinnar. Fórum svo að versla og úti á plani áður en við trítluðum í Krónuna tilkynnir skottan mér að ef hún ákveði að eiga börn þegar hún fullorðnast þá er hún að hugsa um að ættleiða, já eða bara fá sér hund. Það er nefnilega ekki svo að bara litlir drengir eru dauðfegnir að vera strákar þegar þeir læra allt um fæðingar og hvar krakkinn poppar út. Niiii stúlkur velta þessu líka fyrir sér og vita sem er að þær skipta ekki um kyn,...

Lífið er yndislegt...

...ég geri það sem ég vil - já eða þannig, var að þrífa í morgun - ekki uppáhaldið kannski. Merkilegt hvað allt verður betra í sólinni. Hitinn fínn, sumir reyndar að kafna. Það eru tveir apakettir í garðinum hjá mér að klifra í trjánum. Segjast vera að saga þau niður, en annar er alltaf komin upp í tréð sem á að vera á leið niður. Beggi er í fríi og BH plataði hann að taka trén niður sem við viljum fá í burtu til að fá meiri sól inn í garðinn og á pallinn. Hann segir að sér hundleiðist ef hann fái ekkert að gera þar til hann byrjar í nýju vinnunni og er því hérna úti að vinna á fullu í hitanum. KEB er honum til halds og traust og leiðist það ekki mikið, það er svo mikið fjör hjá þeim frændunum. Það verður sennilega bara skemmtilegra á morgun því þá koma Björgvinssynir báðir líka. Svo endum við í garðpartý hjá Eddu seinnipartinn, öll með krosslagða fingur um að spáin gangi eftir. Það lítur aldeilis út fyrir það akkúrat núna. Freyja og Róbert eru komin til landsins, hlakka til að hitta þ...

Veðurfréttir

Vill einhver vita hvernig veðrið er í Danaveldi núna? Fyrir áhugasama get ég upplýst að það er sól og brakandi blíða. En eru örugglega allir meðvitaðir um hvernig veðrið er hér á höfuðborgarsvæðinu? Fyrir þá sem ekki vita get ég gefið upp að það er rigning og skýjað - mígandi rigning og meiri rigning. Svona er nú það!! Annars er gott veður - svo gott að við krakkarnir fórum gangandi í Bónus að versla og á bókasafnið. Urðum eins og hundar dregnir af sundi því úðinn leyndi á sér og var ansi þéttur. En þetta var hressandi, man það næst að vera í regnbuxum. Þegar ég er svona úti glotti ég nú oft út í annað þegar ég hugsa um allt bjartsýnisfólkið sem heldur í alvöru að það geti komið hinum almenna Íslendingi upp á hjólið til að nota í vinnuna. Já Right, einmitt - akkúrat fararskjótinn sem ég myndi velja mér í dag ef ég ynni í bænum t.d. Kæmi svo smekklega klesst og blaut í vinnuna að fólk myndi halda að ég hefði verið barin og rænd á leiðinni. Aron Frosti er eins árs í dag - stór strákur - ...

Heiðardalur

Komin heim í heiðardalinn - á fullu að taka upp úr töskum og versla og undirbúa helgina sem ætlar að verða verulega þéttbókuð. Svo þarf alltaf að þvo og allt þetta skemmtilega sem fylgir ferðalögum. Það er gott að koma heim - veðrið ekki að spilla fyrir mér núna. Ég er of busy til að njóta sólarinnar þannig að þetta hentar fínt. Hlakka til að hitta Freyju sem er á leiðinn til landsins á mánudaginn, ásamt Róberti í þetta sinn. Verður gaman að hitta þau. Svo í kjölfarið er þau eru farin af landi brott koma Jana og Óðinn svo það er bara skemmtilegt. Gaman að sjá fólkið sitt reglulega, þó það sé bara einu sinni á ári - það er nauðsynlegt. Later

Nemlig

Hellirigning í dag - mígandi Magnús eins og KBB orðaði það. Í fréttum núna er bara vatnsúrhelli - slökkviliðið inni í bæjum að dæla vatni í burtu og tekið viðtal við rennandi blautt tjaldútilegu fólk sem er að forða sér af tjaldsvæðum. Skemmtilegt - ekki eins skemmtilegt og veðurfréttirnar áðan. Þar var sýnt rigning á sunnudag og mánudag, léttir til á þriðjudag, þá er hálfskýjað og sól. og Veðurfréttaþulurinn tilkynnti að sumarið kemur til Danmerkur á þriðjudaginn því næstu daga þar á eftir verður brakandi blíða og hyggeligt. Minni á fyrir þá sem ekki vita að við fjölskyldan höldum heim að kvöldi þriðjudags. :o) Við vonum bara að góða veðrið sé líka á Íslandi í næstu viku. Hlökkum til að koma heim, en okkur finnst líka ferla notalegt að vera hérna. Þó ég skrifi mikið um rigninguna þá hafa það bara verið báðir laugardagarnir sem hefur verið úrhelli. Hitt hefur allt verið viðráðanlegt. Fór í Blómabúð áðan - spurði manninn hvort hann talaði ensku, hann hélt það nú. Hann græjaði það sem ég...

Veðurfréttir

Hálfskýjað og sól, engin rigning fyrr en undir kvöld. Allir spenntir fyrir veðurfréttum - þokkalega íslenskur áhugi. Fórum aftur í Thorsminde í dag á ströndina. Krakkarnir elska ströndina. Við BH fengum okkur sæti undir steinhleðslu á milli einhverra fjölskyldna sem einnig voru þarna í dag. Vorum þannig alveg í skjóli. Gat í skýjunum akkúrat yfir okkur og sólin skein í nokkrar mínútur. Krakkarnir voru í flæðamálinu að slást við öldur og marglyttur á meðan ég las og BH talaði í símann. Ákváðum að forða okkur er sólin kvaddi partýið og drifum okkur í bæ sem kallast Söndervig. Ferðamannastaður, skemmtilegt að koma þarna. Skoðuðum sandskúlptúra, það er magnað hvað fólk getur búið til úr sandi. Næsti viðkomustaður var Spjald, þar var BH á svínabúi hjá Nils og Helgu er hann var 12 ára. Við keyrðum framhjá því býli og fórum í bæinn Spjald þar sem þau hjónin búa nú. Heimsóttum þau með 10 mínútna fyrirvara - alltaf jafn kurteis. Það var gaman að stoppa við hjá þeim. En mikið ferlega er erfitt a...

Glefsur úr sumarfríinu

Höfum oft verið heppnari með veður í sumarfríi fjölskyldunnar. En hver fer til Norðurlanda og stólar á gott veður? Ekki við - þess vegna tókum við regnúlpurnar okkar með. Og höfum aldeilis haft not fyrir þær líka. Okkur FINNST rigningin góð :o) Þetta er nú ekki svona slæmt, við höfum haft nóg fyrir stafni og látum þetta ekki á okkur fá. Enda höfum við fengið sólarglætu í gegnum skýin og rigningin hefur ekki verið það mikil að við séum alltaf rennandi blaut. Fórum í fyrradag í Legoland í Billund, hittum það Elísabetu kennara í Lágafellsskóla. Það eru Íslendingar hér á hverju horni. Fengum skítsæmilegt veður í Legolandi og skemmtum okkur vel. Það rigndi sama og ekkert en við redduðum því, keyptum okkur ponsjó og fórum í sjóræningja vatnsslag á sjóræningjaskipi í garðinum. Svo náttlega þurftum við að prófa vatnalestirnar og allt sem var þarna í boði. Náðum að draga BH með okkur í einn lítinn Xtreme rail leiðangur. Annars er það sko mamman í þessari fjölskyldu sem fer með krökkunum í græju...