Fara í aðalinnihald

Færslur

Afmælisstúss

Búin að vera að síðan kl. 8 í morgun að stússast fyrir afmælið hennar KBB á laugardaginn. Þreif fyrir hádegi, verslaði svo allt sem vantaði í bakstur og veitingar og svo ég búin að standa í eldhúsinu frá kl. 14 að baka. Svo á morgun set ég á þetta allt saman og geymi í kuldanum inni í þvottahúsi yfir nótt. Meira vesenið að kaupa inn fyrir svona afmæli. Fór í Bónus og Krónuna hérna í bænum og fékk ekki allt sem mig vantaði. Brunaði því í Hagkaup í Spönginni til að ná í rest en fékk ekki allt og endaði því hjá tengdó og fékk það sem á vantaði. Gott að eiga góða að! Ég var alvarlega farin að velta fyrir mér hvort maður þyrfti virkilega að panta á netinu frá útlandinu til að klára sig á svona veisluhöldum. Allir orðnir svo ódýrir og eiga bara það sem selst nógu hratt að ekki er hægt að fá nema stundum sumar vörur. Nú er bara að láta dömuna hringja í vini og ættingja og bjóða fólki í afmælið, væri verra ef það gleymdist - kæmi mér samt ekki á óvart þó ég myndi afreka það. Later

Deja Vu

Foreldraviðtölum lokið og í stuttu máli var þetta eins og ég skrifaði í morgun. Alltaf ósköp svipað hjá okkur. Eigum góð og stillt börn sem standa sig prýðilega í námi - Er hægt að biðja um meira? Montin mamma

Allt og ekkert

Krakkarnir fengu miðsvetrareinkunnir í gær og að venju voru foreldrarnir í skýjunum með þessi fullkomnu afkvæmi sín. Þau stóðu sig vel og fengu góðar umsagnir frá kennurum. Í dag eru foreldraviðtöl þar sem við tökum svo við lofræðum um þau, þessar sömu og við fáum tvisvar á ári. Standard pakki - KEB þarf að vanda betur vinnubrögð og flýta sér minna, en annars allt í góðu og drengurinn eldklár og alger ljúflingur. KBB mætti vera duglegri að skrifa og ekki sleppa helmingnum af blaðsíðunni þegar hún er beðin um að semja sögur t.d., en annars eldklár og hörkudugnaðar kona. Ég er nokkuð viss um að þetta verður útkoman, en ég kemst betur að því milli 11 og 12. Hringdi í Skáksambandið og gerði athugasemd við það að foreldrar standi yfir börnum sínum og hjálpi þeim. Konan sem svaraði mér var hin ljúfasta og nett pirruð á þessu framferði fullorðins fólks. Hún sagði þetta vera vandamál sem erfitt væri að eiga við á stórum mótum því þau hafa ekki mannskap til að standa við öll borðin sem telft er...

skák og mát

Fórum í 80 ára afmæli í gær hjá afa kalda, Maggi fimmtugur laumaði sér með í afmælispakkann. Rosa fjör að hitta allt fólkið, frændsystkinin sjást of sjaldan og á meðan vex yngsta kynslóðin á methraða. Það kom gaur sem spilaði nokkur lög á fiðlu með harmonikku sem backup. Mikið rosalega var það flott, allir sátu og hlustuðu og höfðu verulega gaman að. Þetta var svo létt og yfirvegað hjá þeim að litlu krílin steinþögðu og sátu kyrr allann tímann og hlustuðu líka. Maggi tók nokkur lög að venju og var fólk beðið um að sjá um að allir væru spakir - líka þessir litlu. En sex lög í óperu var meira en litla fólkið þoldi, svo þeim var leyft að fara fram og leika sér þar . Laumaði mér fram líka eftir fimmta lag, óperan ekki alveg minn bolli af te. Karlotta tók þátt í móti hjá skáksambandi Íslands í gær og gekk ágætlega, man ekki hvað hún sagðist hafa fengið marga vinninga, en hún vann alla vega einhverjar skákir. Það sem fór í taugarnar á henni, og er að pirra mig núna, er að foreldrar tveggja k...

Plastpakki?

BH benti mér á í gær við matarborðið hjá Lilju að ég væri að verða 35 ára í sumar, og svo glotti hann og var nokkuð skemmt. Ég bað hann vel að lifa og halda athugasemdum sínum bara fyrir sig. Í raun er mér slétt sama hve gömul ég verð, hef enn ekki fengið neina aldurskomplexa. Maðurinn minn er staðráðinn í að hrella mig samt og reyna að koma að gremju hjá mér í tengslum við aldur. Í hádeginu er við vorum orðin tvö eftir við matarborðið (heitt súkkulaði og tilheyrandi), krakkarnir farnir út, KEB á fimleikaæfingu og KBB á skákmót, þá spyr hann hvað hann eigi að gefa mér í 35 ára afmælisgjöf. Ég benti honum á að það væri fyndið að hann skyldi vera svona upptekin af afmælinu mínu núna og svo myndi hann sennilega gleyma því í sumar, svona eins og oft áður. Ég væri bara þokkalega lukkuleg ef einhver hér á heimilinu myndi muna það þegar ég á afmæli. Ég nefnilega legg það ekki í vana minn að minna þau á það - en er því duglegri að halda öllum við efnið þegar eitt þeirra á afmæli. Það var svona...

CRASH

Spurning um að hægja á sér og fara varlega. Síðustu viku hef ég séð strætó keyra aftan á mótórhjól, jeppabifreið ekið á ljósastaur, komið að árekstri á gatnamótunum Grensás og Miklabraut og sjálf hafði ég næstum ekið á bíl sem ekið var í veg fyrir mig í Hraunbergi. Þannig að ég ítreka bara farið varlega í umferðinni það leynist hálka á götunum víða.

Móðurhlutverkið

Það getur verið vandasamt að svara spurningum barna sinna og halda andlitinu líka. Það getur verið verulega snúið að springa ekki úr hlátri, roðna ekki niður í tær eða koma sér undan að svara bara. Dóttir mín kom inn úr dyrunum áðan á kafi í snjó, blaðskellandi og spurði um leið og hún lokaði hurðinni, "Hvað er standpína?" Ég hef það fyrir reglu að reyna að svara heiðarlega en hef svörin bara einföld - útskýri ekkert meira en ég er spurð um. Svo ég svara "það er svona þegar typpið á körlum stendur út í loftið" Og nú vildi hún spyrja meira - "Er það einhver sjúkdómur?" Svarið þið nú, er það sjúkdómur? Ég taldi það nú ekki vera og sem betur fer var ég ekki spurð meira í þetta sinn. Vinkonur hennar tvær, skólaárinu eldri fræddu hana á þessu í dag og sögðu jafnframt að orðin gaur og standpína væru samheiti, ég leiðrétti þann misskilning og lét gott heita. Það er þannig að móðurhlutverkið er ekki mjög einhæft, maður þarf að standa klár á alls konar upplýsingum...