Fara í aðalinnihald

Færslur

Kanntu brauð að baka...

...Já það kann ég. Við Helena bökuðum FULLT af kanilsnúðum í dag, 2 bananabrauð og 2 Döðlubrauð. Baka kannski brauð aftur á morgun, bara til að hafa nóg með Vestur. Kanilsnúðarnir eru snilld - gerbakstur - klikkar ekki. Döðlubrauðið er to die for - og ég borða ekki döðlur. Bananabrauðið er náttlega ómissandi og við komum rúllandi heim eftir fríið. Sóttum myndir í framköllun fyrir hádegið, hvað er langt síðan maður gerði það? Karlotta vildi vita í gær af hverju ég prentaði ekki bara myndirnar. Kjartan var með einnota myndavélar í Vatnaskógi, datt í vatnið með aðra þeirra alla vega og eru þær myndir skrautlegar með bleikum doppum hér og þar. Bara gaman fyrir hann að eiga þessar myndir seinna, ætla að setja þær fljótlega í albúm með honum þannig að hann geti skrifað við myndirnar nöfn á fólki og hvað þeir voru að gera. Á næsta ári verða þau bæði send með einnota myndavélar, gaman að eiga þessar minningar. Alltaf fréttir um drukknanir í sundlaugum landsins upp á síðkastið. Ég er hætt að ve...

Piltur og stúlka

Drengurinn kom heim sæll og glaður, endalausar sögur og mikið fjör. Mamman tók upp úr töskunum hans um kvöldið og satt best að segja leit út fyrir að einhver hefði komið fyrir handsprengju þar ofaní. Öllu hafði verið hent "snyrtilega" í hrúgu í töskuna og svo lokað og vonað það besta. Tók þetta bara beint í þvottakörfuna svo engum varð meint af. En get sagt að ólíkt var að opna töskur systur hans síðasta föstudag, þar vantaði bara ilmrósablöð og reykelsi efst til að toppa samanbrotin fötin, þannig að ég vissi ekki hvort þau voru notuð eða ekki. Kynin leggja ólíka áherslu á hlutina, það er alveg ljóst. Nú erum við fjölskyldan orðin fjögur aftur og allt orðið eins og það á að vera í Leirutanganum. Veröndin og garðurinn eru æði - fékk borð í gær og nú er hægt að sitja úti (á gömlu sólstólunum) í sólinni og rokinu að lesa og ná sér í smá lit - yndislegt. Rokið er nefnilega ekkert að pirra mig á pallinum, þar er þokkalegt skjól þó trén leggist nánast á hliðina á móti mér. Baldvin ...

Klósettferðir

Baldvin telur bloggið mitt vera svona um klósettferðir, varð nú pínu fúl kannski en þetta sennilega rétt hjá honum. Er svona nokkurs konar dagbók kannski. Skemmtilegra að lesa bullið úr þeim sem eru að velta lífinu fyrir sér. En ég var að hugsa þetta í gær og komst að þeirri niðurstöðu að bloggið mitt ber þess merki að ég hef kannski of mikið að gera bara. Dæmigerð íslensk húsmóðir. Er á fullu allann daginn og er bara þreytt og vitlaus á kvöldin og þá er ekki mikið um heimspekilegar pælingar. Hef bara ekki orku í þannig til að setja það á blað alla vega. Búin að gleyma öllu því sem maður er búin að vera að velta fyrir sér þegar maður er úti að dunda í beðunum eða bera á timbrið á milli þess sem maður sinnir börnum sem þurfa mat o.þ.h. Verð kannski eitthvað gáfulegri og spái meira í hlutina í haust þegar skólinn byrjar. Þá fæ ég sennilega athugasemdir frá honum eins og "þarftu alltaf að velta þér uppúr svona hlutum" eða eitthvað álíka. Erfitt að gera honum til hæfis - hef bara...

All done

Nú verður farið í fyrramálið og náð í borð og stóla. Minns er búinn að bera á pallinn og vegginn, hrúga blómum í pottana og setja þetta allt voða flott hérna úti. Er meira að segja að þrífa grillið og búin að pússa upp borðið á því og bera á. Ætla að kaupa mér spray og gera það almennilega svart aftur. Pallurinn og umhverfið er orðið svo flott að ég get ekki haft gamalt illa farið grill hérna til að krampa stílinn. Hættum að vinna hérna úti kl. 23 í kvöld og enduðum í ostaköku hjá Hörpu og Gumma, Helena og Davíð voru dregin með inn líka. Það var mikið spjallað og hlegið, aðallega hlegið samt. Karlotta var að fara inn í rúm og spurði hvað klukkan sé. Trúði því nú ekki að hún væri orðin eitt um nótt, vildi vita af hverju væri þá svona bjart. Nú er bara að fara að sofa til að vakna hress (eins og það gerist einhvern tímann - aldrei neitt eiturhress á morgnana) og halda áfram þarna úti í sólinni og rokinu. Vona nú samt að rokið verði bara á Atlantshafinu og láti mig í friði hérna í garðinu...

You Go Girls

Flottar í íslenska fótbolta landsliðinu bökuðu Serbana. Spurning um að þær fari að kenna karlaliðinu hvernig á að gera þetta. "Þú kaupir aldrei pæjuföt á mig" Já já daman er komin heim, ég keypti á hana topp í Zöru á hana og þetta var svona nafladæmi sem hún var hæstánægð með. En mamman var lítið hrifin og ég skipti honum og við keyptum annað í staðinn. Benti krílinu á það að hún væri bara alltaf pæja það þyrfti ekkert að bera naflann til að vera pæja. Hún var alsæl í Ölver og ætlar aftur að ári og þá að sjálfsögðu í Ölver, nennir ekki að ræða Vindáshlíð. Hún hefur aldur til að fara þangað á næsta ári, en hún fær alveg að ráða þessu. Ég er ánægð með hve vel tókst til og hversu ánægð hún er. Hún talaði stanslaust í 3 klukkutíma að segja mér sögur og syngja fyrir mig lög sem hún lærði. Kannast nú við nokkur síðan ég var sjálf að gaula þetta í KFUK. Nú er bara gaurinn eftir og ég vona að það sé eins gaman hjá honum og hann vilji fara aftur næsta sumar. Hann er reyndar að fara af...

Palla kerling

Lítið um að vera hérna. Er enn að hamast á þessum vegg við pallinn, endalaus vinna á svona 2 tíma eftir og þá er ég búin að pússa þetta og þá tekur málningavinnan við. Hún er öllu auðveldari og fljótlegri vona að ég klári þetta í góða veðrinu á morgun. Baldvin háþrýstiþvoði pallinn þannig að það ætti vonandi að vera hægt að bera á hann á laugardaginn. Þá verður búið að kaupa sumarblóm til að setja í blómapottana fínu sem við keyptum um daginn. Svo læt ég verða af því að kaupa mér borð og stóla hérna út og þá verður pallurinn algert æði og tími fyrir okkur að drífa okkur Vestur á firði í frí. Pöddurnar og fuglarnir njóta þá afrakstur vinnunar okkar. Fór í Glitni í dag með ávísun frá Rafiðnaðarsambandinu, stílaða á Baldvin og tvíyfirstrikaða. Í stuttu máli mátti ég ekki einu sinni leggja hana inn á reikningin hans, þrátt fyrir að vera með hana framvísaða og allt. Neibb mín er með prófkúru á reikninginn hans og því mátti ég bara ekki með nokkru móti leysa hana út né leggja hana inn á ávís...