Fara í aðalinnihald

Grasekkja

Hvað gerir maður þegar eiginmaðurinn bregður sér af bæ og yfir Atlantshafið og enn lengra ? Er með þrjá hunda hérna sem þarf að hreyfa svo orkan í þeim safnist ekki upp og springi í andlitið á mér. KEB er sjaldnast heima og KBB fer ekki með þau öll út.

Þegar ein lítil (ok ekki svo voðalega lítil) kona þarf að hreyfa tvo öfluga rakka þá bregður hún sér á sleðann sem eiginmaðurinn barði saman. Fór í Grafarvoginn áðan, tók sleðann út og skellti kvikindunum fyrir framan gripinn. Svo þaut ég af stað... já ok ég þaut ekki svo mikið, þurftu að leiða þá inn á göngustíginn því þeir eru mjög uppteknir við að hlusta ekkert á mig. Meira uppteknir í typpakeppni við hvorn annan. En svo þutum við af stað og ég mátti hafa mig alla við að standa sleðanum. Mikið fjör og mikið gaman. Þetta gekk svona mestan part vel en mikið rosalega get ég orðið pirruð þegar þeir ákveða að það sé mjög sniðugt að snusa alls staðar og míga sums staðar. Langar stundum að hafa svipu til að "hvetja" þá áfram. Svo þarf ég virkilega að vinna í því að láta þá standa kyrra þegar á þarf að halda. Annars var þetta mjög gaman, þeir spretta vel úr spori þegar þeir bara hlaupa áfram og ekkert truflar þá - það er engu líkt.

KBB hafði farið í góðan göngutúr með Ronju fyrr um daginn svo hún var ekki með í þetta sinn.

KEB tók sig vel út í sjónvarpinu í dag (RÚV). Það var sýnt frá hópfimleikum í Alþjóðlegu Reykjavíkurleikunum. Fannst hann súper flottur. Hringdi í hann í gær og svona mjálmaði að hann hefði nú alveg mátt segja mér að þeir hefðu lent í fyrsta sæti, ég var voða ánægð fyrir þeirra hönd. Þá heyrðist hinum megin á línunni "mamma - það var bara eitt drengjalið, við kepptum á móti okkur sjálfum". Ehe ó! En þeir skoruðu hæst allra hópa á trampólíni svo eitthvað hafa þeir getað þessar elskur. Hlakka svo til ef þeim fer að ganga vel og geta gert þetta pínu alvöru, verst hvað það eru fáir drengir sem eru í þessu sporti í alvöru.

KBB tókst að plata mig til að spila eftir matinn. Skemmtum okkur ágætlega í Sequence yfir fréttunum og Landanum. Þá fékk sú stutta nóg því mamman vildi ekki spila eitthvað annað :)

Later

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...