Fara í aðalinnihald

Skattar og skyldur

Það hefur sennilega bara ekki gerst áður að frú ég (sem er víst ekki frú lengur) skili skattskýrslu áður en frestur rennur út. Og oft hef ég náð mér í aukafrest. Ákvað að drífa þetta af núna og mér til mikillar ánægju var þetta svo hrikalega lítið mál að það er skömm að því að vera að fá aukafrest eða mikla þetta fyrir sér. Alla vega ef maður er ekki að selja eða kaupa eignir á árinu eða braska með hlutabréf eða eitthvað slíkt. Hér hefur allt verið rólegt í slíkum málum og því búið að fylla allt út fyrir mann. Bara tékka hvort það séu ekki öll lán og eignir og laun skráð og dæmið dautt. Ég þurfti ekki að breyta neinu. Rétt aðeins að fylla út fyrir KEB, þar er ekkert forskráð. Lítið mál því hann var búinn að fá launamiðana sína.

Ég hugsa til þess með hryllingi þegar ég þurfti að fylla út fyrstu skýrsluna mína - allt á pappír... fyrst handskrifa og reikna allt út, svo vélrita, já VÉLRITA, allt upp til að hafa snyrtilegt. Hendast svo með blöðin á Tryggvagötuna og setja í lúguna fínu þar sem allir hinir voru líka á síðustu stundu :o)

Svo fór þetta að vera auðveldara þegar þetta var gert í gegnum netið - engu að síður þurfti maður að reikna upp öll lánin sín og hrúga eignum og hlutabréfum á réttan stað. Öll hlutabréfin maður... jú við eigum hlut í Rögg :o) Hundleiðinlegt en töluvert fljótlegra og skárra en áður samt. Eina sem ég tók eftir var smá þunglyndi yfir því að sjá lánin bara hækka þrátt fyrir að borga og borga allt árið... helv... vextir og vaxtavextir og það allt.

Ignorance is a bliss og því er ég þokkalega sátt núna að fá þetta allt bara forskráð fyrir mig. Sé bara heildarniðurstöður og þarf ekki að pirra mig á hversu mikið ég er búin að borga og sjá samt allar tölur hækka :o/

Í ár bar svo við að þegar ég (með móður mína á línunni) ákvað að kíkja á útreikningin færðist bros á andlitið en jafnframt smá kvíðaverkur í magann. Við hjónin fáum ENDURGREITT í ár eins og margir aðrir. Kannski ekki eins mikið og sumir en meira en við höfum fengið í mörg ár. Kvíðinn stafaði helst af því að skatturinn er ekki hátt skrifaður í mínum bókum og því treysti ég þeim mátulega. Mamman sannfærði mig um að þetta væri nú sennilega rétt samt. Eitthvað virðist hið opinbera vera að "leiðrétta" ofurvexti og ranglæti. Þó í pínulitlum mæli sé.

Þannig að nú er ég ekki frú lengur (ekki nógu efnuð til að titla mig það) komin í tölu aumingja og styrkþega. Hugga mig við að ma og pa halda okkur uppi með því að borga og borga skatta og skyldur og fá ekkert tilbaka í formi peningagreiðslu í ágúst.

Í stað þess að pirra mig yfir hækkun á lánum og því öllu velti ég því fyrir mér að fyrst "ignorance is a bliss" why aren´t more people happy ??

Later

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Ert mín frú, óháð verðmæti!
Lóa Björk sagði…
Setur ekki verðmiða á svona dýrgrip - ég er klárlega priceless :o)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...