Ég og KEB höfum átt ágætis samleið í tónlist í gegnum tíðina. Ég hef ekki pirrað mig á því að hann hafi spilað hátt leiðinlega og erfiða tónlist sem öldruð móðir hans á erfitt með að hlusta á.
En um daginn bankaði ég hjá honum, opnaði hurðina, horfði á hann og sagði "ég fíla mig pínu eins og unglingamamma núna". Drengurinn glotti aðeins og spurði "á ég að lækka?" Ég þáði það og lokaði aftur.
Núna er verið að blasta tónlist sem ég kann ekki að meta en þar sem þetta er gert sjaldan þá læt ég mig hafa það. Vona bara að okkar leiðir liggi aftur saman í tónlistarvali því það er svo gott að hafa smá stuðning á móti feðginunum :o) Þau eru fáránlega samtaka í vali á tónlist, já eða svona oftast alla vega. Ferlega krúttað :o)
Hins vegar þoli ég vel (og pabbinn líka) að heyra drenginn æfa sig og æfa á klarinettið til að ná "the flight of the bumblebee". Það er mjög erfitt en hann ætlar að ná því einn daginn og er byrjaður að reyna og gengur bara ljómandi ágætlega finnst mér.
Hér má sjá einn spila þetta á tónleikum.
Skilst að það þurfi að anda inn um nefið um leið og blásið er í hljóðfærið til að spila þetta. Smá tækni :o)
Mér finnst auðvitað voða gaman að hann skuli hafa smá áhuga á að bæta við sig á hljóðfærið líkt og áhuginn er mikill í kringum íþróttirnar :o)
Later

Ummæli