Er að hlusta á einhver gáfumenni úr stjórnarflokkunum í morgunútvarpi Bylgjunnar. Mig flökrar bullið og röflið sem þau bjóða uppá. Er reyndar orðin verulega þreytt á froðunni sem lekur út úr öllu þessu fólki. Nei ég held ekki að stjórnarandstöðuflokkarnir hefðu gert mikið betur. Ég er bara svo reið yfir að þessir APAHEILAR ætli að hneppa alla þjóðina í skuldafangelsi þar til fólk drepst og gott betur.
Hvað gerir það gott að fresta uppboðum þar til í haust? Er ekki betra að vera hent út bara núna strax? Ég held að það hljóti að vera skárra, þá er ekki verið að eyða þessum fáu krónum sem fólk hefur á milli handanna í steypu sem verður tekin eftir nokkrar vikur. Einnig hlýtur að vera betra að skrokkurinn venjist hægt og rólega útiverunni. Nota sumarið til að vera úti á guði og gaddi, svona venja skrokkinn við kuldann sem verður svo í vetur. Það hlýtur að vera verra að vera hent út þegar veður er kólnandi!
Greiðsluaðlögun er lélegt grín - lengja í öllum lánum en gera fólki ókleift að sjá út úr skuldafeninu. Andskotinn hafi það drullist til að láta lánveitendur taka smá skell - djöfuls meinloka er þetta hjá þessum kjánum sem eru öruggir með sín laun og launalaun og aukabónusa og eftirlaun og hvað þetta heitir allt saman.
Flökraði bókstaflega í gær þegar sagt var í kvöldfréttum sjónvarps frá stjórnarmyndun. Steingrímur J. mætti á eldgömlum forn Volvo - já vinur litla mannsins, ég gæti gubbað. Þetta er örugglega beyglan sem hann keyrir um á alla daga með fjölskylduna - hmm, hef einhvern veginn ekki trú á því. Og ef svo er þá virkar þetta mjög ótrúverðugt og frekar sovéskt eitthvað. Þetta kallast að snobba niður fyrir sig.
Öll fyrirtækin sem rúlla yfir á meðan ríkisstjórnin horfir róleg á - endilega takið svona eins og tvær vikur í að mynda stjórn. Vankað lið - endilega rífist aðeins um ESB og komist svo að ENGRI niðurstöðu. Ég er alveg fylgjandi því að fólk sé sammála um að vera ósammála. Það er hið besta mál oftsinnis - en ég er nú ekki svo barnaleg að halda að það sé bara í lagi þegar um ríkisstjórn er að ræða. Þetta fólk er bara ekki alveg með fulla fimm.
Að hlusta á þingmenn og ráðherra ríkisstjórnar í fjölmiðlum er sárt, yrði ekki hissa ef það fer að leka blóð út um eyrun á fólki eftir eitthvað viðtalið. Það á eftir að springa eitthvað í hausnum á okkur þegar hann er orðinn fullur af kjaftæðinu sem okkur er boðið uppá.
Kvótakerfið - endilega rústið því bara í hvelli. Ég hef verið mikið á móti þessu kvótakerfi sem komið var á í kringum 1980. Ég skil ekki að nokkrum manni hafi komið þessi ósköp í hug. Nema náttúrulega að sjá fyrir að geta makað krókinn all svakalega - sem þeir gerðu margir. Þetta er svo ósanngjarnt og vitlaust kerfi upphaflega að það er þyngra en tárum taki. EN í dag eiga þeir kvótann sem hafa þurft að kaupa hann verulega dýru verði. Á að kaffæra þá í einu skoti eða tveimur? Það er verulega ósanngjarnt. Hvernig væri að skattleggja þá sem fengu alla peningana fyrir endemis kvótann. Kvótakóngarnir sem fengu hann gefins á sínum tíma og seldu svo fyrir fáránlega upphæðir með samþykki ráðamanna. Það er í raun alveg magnað að gefa nokkrum bátum framtíðarfiskinn í sjónum og neita fleirum um aðgang nema borga þessum sem voru svo heppnir að vera bátaeigendur á þeim tíma sem kerfið er sett. Ég á aldrei nokkurn tíma eftir að skilja hvernig þeim tókst að koma þessu úr höndum ríkisins. Af hverju átti ríkið ekki kvótann og leigði út veiðiheimildir á hverju ári til þeirra sem raunverulega voru að róa?
Nú er ég kannski að segja meira en ég hef vit á - hljóma kannski eins og börnin sem einfalda hlutina um of... eða hvað, einfalda þau hlutina um of? Hafa þau ekki bara oft rétt fyrir sér þegar þau sjá hlutina bara eins og þeir eru og eru ekki komin með hæfileikann til að flækja málin endalaust?
Er bara óendanlega pirruð og svekkt yfir því hvernig komið er fyrir fólki hérna. Og líka fúl þegar sagt er að við höfum öll tekið þátt í þessu og getum sjálfum okkur um kennt - já nei það ætla ég ekki að samþykkja.
Later

Ummæli
Lilja