Fara í aðalinnihald

Færslur

Höfuð herðar hné og tær... og mjaðmir !

Haldiði ekki að frúin hafi farið út að hlaupa áðan. Í fyrsta sinn síðan ... ööö man ekki, alla vega eftir krossbandaslit. Fyrsti markvissi hlaupatúrinn var sumsé í dag. Hljóp ekkert allan tímann, enda var það ekki planið. Hljóp samt alveg rúmlega helming leiðarinnar sem taldi 5KM. Hnéð? Það hvíslaði... þú getur þetta krúttan mín, ekkert mál. Mjaðmirnar ? Þær loguðu vítislogum og ÖSKRUÐU ... Gleymdu þessu druslan þín, þú átt ekki séns. Svo nú þarf ég bara að ákveða hvernig ég ætla að halda hnénu þokkalegu áfram og þagga niður í þessum mjöðmum. Einhver ráð ? Later

Trölli

Ég hef í gegnum tíðina stundum haldið því fram að það sé eitthvað í vantinu hér í Mosó. Börnin mín fæddust ekki stór, enda komu þau bæði mánuði fyrir tímann - þá voru þau tilbúin í lífið. En þegar þau komu í heiminn þá stækkuðu þau hratt. Hafa bæði alltaf þótt frekar stór. Hún kannski áberandi meira en hann. Í dag er drengurinn orðinn þokkalega hávaxinn... eða svona eins og honum þótti nóg. Þriggja ára sagði hann mömmu sinni að hann ætlaði að verða stærri en mamma en minni en pabbi... hann stóð við það. En hann ákvað að stækka alla vöðva líka, þannig að hann er töluvert þykkari en karl faðir sinn, talaði ekkert um það þarna um árið - þannig að nú er að viðhalda ósköpunum og æfir hann því Olympískar lyftingar af krafti (pun not intended - er bara svona fyndin). Honum gengur svona ljómandi vel, svo vel að reyndir menn hæla honum í hástert og tala um að hann sé þvílíkt efnilegur, svo mikið að þeir eiga ekki orð. Um helgina hefur bæjarhátíðin "Í túninu heima" hér í M...

Nefni engin nöfn...

En fyrsti stafurinn er Baldvin Hansson ! Later

Nelson Mandela

Ég fylgist með fréttum - stjórnmálin eru crazy alls staðar. Shit þetta fíaskó í íslenskum stjórnmálum, það er ekki hægt að búa svona drullu til. Það myndi engin horfa á í sjónvarpi svona leikfléttur því þetta er of heimskulegt. Hafandi sagt það þá er ég einlægur aðdáandi House of Cards. Og þótt ótrúlegt megi virðast er ég alveg á bandi þeirra Underwood hjóna. Það er frekar vandræðaleg staðreynd og ég roðnaði pínu þegar ég áttaði mig á því. Hvers konar manneskja er ég? En ég tel sjálfri mér trú um að þetta sé aðeins sjónvarpsþáttur og ekki raunveruleikinn. Og ég viðurkenni það hér með, og er skammast mín ekkert, ég er heitur aðdáandi Kevin Spacey. Og Robin Wright kemur sterk inn sem ein af uppáhalds eftir þesssa þætti alla. Þegar fyrrverandi forsætisráðherra baðaði út öllum öngum spriklandi á gólfinu í frekjukastinu sínu og rembdist við að halda embætti sínu, gat ég ekki annað en fylgst með. Og ég verð að viðurkenna að ég skellti uppúr reglulega þann daginn. Þvílíkur farsi sem þessi...

Viðkvæmni

Ég varð eiginlega alveg bit í gær - las póst á fb þar sem vinsamlegast var beðið um að fólk væri ekki að plata með þykjustu óléttu á fb sem aprílgabb... af því það er svo voðalega erfitt og sárt fyrir þá sem ekki geta átt börn. REALLY ? Ég missti hökuna niður á bringu... en var kannski ekki beint hissa miðað við allt og allt undanfarin ár. Það má bara ekki gera grín að neinu lengur né gera nokkuð sem á einhvern hátt getur farið fyrir brjóstið á einhverjum hópum eða einstaklingum. Fólk... í alvöru, voðalega eru allir brothættir. Ég viðurkenni fúslega skilningsleysi mitt á að finnast það vera aprílgabb að feika óléttu 1. apríl á fb. Finnst það ekkert fyndið og afskaplega slappt aprílgabb. 1. apríl gengur ekki út á að ljúga að fólki. Það gengur út á að láta fólk hlaupa apríl. En ef einhverjum þykir það sniðugt þá bara gerir hann það. En að það særi svo voðalega þá sem eiga erfitt með að geta börn ??? Örugglega satt og rétt, en hvað með þá sem í alvöru eiga von á barni? Mega þeir...

Bíllaus... til frambúðar

Litla skottan mín er komin með bílpróf. Það er bara þannig... bæ bæ bíll ! Það er auðvitað standard joke að vara aðra ökumenn við en ég er ekki að grínast. Við foreldrar hennar höfum ekki beðið með eftirvæntingu neitt. Bróðir hennar fékk bílpróf fyrir 3 árum og við vorum pollróleg sko. Henni fannst hann aðeins of rólegur og vildi meina að hann keyrði eins og Ross í Friends - sumsé ekki mikið um læti neitt. Hentaði okkur foreldrum vel. Árið 2004 varð okkur föður hennar ljóst að hún myndi líkjast sumum í fjölskyldum okkar (ekki okkur auðvitað - við erum spök) Við vorum í Kópavogi og hún var farþegi í bíl, æ þið getið metið þetta bara sjálf svo sem... Svipurinn segir allt sem þarf... "fæ ég ekki að keyra?" Ok hún sætti sig við að vera farþegi en, stjórnaði alveg og tók fullan þátt í að keyra allt í klessu  Og var mjög virk að finna fórnarlömb  Engin samúð með þeim sem fengu að finna fyrir því  Akkúrat engin...  Í alvöru - við hlógum líka... .....