Fara í aðalinnihald

Færslur

Sætar stúlkur og duglegir drengir

Fólk þarf að hugsa hvað það segir og hvernig það kemur fram við börn og unglinga, ekki bara vera hissa yfir fáum stelpum í þessum greinum og fáum strákum í hinum. Svo finnst mér alltaf pínu skrýtið að það er endalaust verið að reyna að fá fleiri konur í hefðbundin "karlastörf". En ég sé aldrei neitt sem gengur út á að fá stráka til að skoða betur það sem við köllum hefðbundin "kvennastörf". Þegar öllu er á botnin hvolft verður fólk að geta valið það sem það vill læra og starfa við - án áreitis og athugasemda frá samfélaginu. Fólk á að fá að velja sér framtíðarstarf í friði og geta verið sátt og stolt yfir því sem það velur og gerir vel. Later

Ísland í dag... og gær

Íslendingar eru svo yndislega sjálfmiðaðir í einu og öllu. Litlir smákóngar út um allt land í öllum húsum og í öllum herbergjum. Þegar maður fer að versla og kemur að kassanum, eru oftar en ekki tómar kerrur sem varna manni að komast að með sína kerru fulla af vörum. Og svo aftur þegar maður er búin að raða í pokana sína þá er ekki nokkur leið að komast auðveldlega sína leið út aftur. Körfunum er "raðað" snyrtilega fyrir allan ganginn beint fyrir aftan kassana... því litlu smákóngarnir og drottningarnar eru búin að nota körfuna í þetta sinnið og vilja því ekki þurfa að spá í þetta meir... bara skutla þeim frá eins og rusli á götuna og gera þær að vandamáli annarra sem koma á eftir og vilja komast sína leið. Skemmtilegt :) Later

Postulín

Í dag eigum við hjónin 20 ára brúðkaupsafmæli. Ég er ekki mikið fyrir væmnar yfirlýsingar um hversu yfirgengilega æðislegt allt er. Enda er ekkert alltaf allt æðislegt og frábært. Það væri galið að ætla að halda því fram. Ég hugsa stundum þegar fólk er með stórar yfirlýsingar um ástina og það hafi fundið þann eina rétta... hvað þessi er nú heppinn þá. Svo viku seinna er fólkið skilið og allt í skít. Þannig að ég held mig á jörðinni, einu sinni sem oftar, og ætla ekkert að skammast mín fyrir það. Fólk uppsker eins og það sáir... það er því gott að hafa í huga að hugsa vel um garðinn sinn. Það gerist ekkert að sjálfu sér og það er enginn einn réttur. Þú finnur ekki þann sem var skapaður fyrir þig og ert í góðum málum ævina á enda. Það virkar ekki þannig. Hjónaband er vinna, sem báðir aðilar verða að sinna, alla daga, alla ævi, til að það geti verið gott hjónaband. Það er ekki öllum gefið, og sennilega fæstum. Því ég þekki engan sem ekki hefur gengið ítrekað á veggi í sambandi sínu v...

Lífið í myndum

Alls konar sem við tökum okkur fyrir hendur - voða basic samt og alltaf það sama... Fiðrildin mín komin á vegginn í fullum blóma núna, keypti loksins Stjúpurnar 7. júní og setti þær niður. Svo nú eru öll sumarblómin komin niður. Mér finnst þessi fiðrildi svo skemmtileg. Keypti þau á Spáni 2005. Burðaðist með þau í handfarangri heim og sé ekki eftir því - myndi kaupa mér fleiri ef ég sé svona aftur á ferðum mínum. Þau eru svo litrík og skemmtileg. Svo eru farnar gönguferðir til að hreyfa bæði hunda og menn. Hundarnir eru fastir í fína pelsinum sínum. Og þrátt fyrir að við blásum ansi rosalega miklu af í byrjun sumars, miðju sumars, lok sumars... já og bara allt endemis sumarið, þá er þeim samt heitt. Og þá er kærkomið að vaða í næsta vatn og kæla sig og drekka smá (mikið) á sólríkum dögum. Ekki laust við að það votti fyrir örlítilli öfund tvífætlinga stundum þegar þau geta vaðið í vatnið smá stund. íslensk náttúra er alltaf skemmtileg. Þessi þrjósku blóm sem ná að vaxa í gr...

Ammlis...

Virkilega hressandi - maður er orðinn svo þroskaður að þetta bítur ekkert á mann... bara sól í hjarta, sól í sinni... er það ekki málið? Later

Nope

Fannst þetta við hæfi eftir vælið í mér undanfarið... Það eru allir husky eigendur með þetta á hreinu - þetta er ekkert ýkt. Sumir gefast upp og láta raka greyin. Þau líta út eins og aumingjar á eftir og það eyðileggur feldinn þeirra. Fólk afsakar það með... svo mikið af hárum út um allt - eða nei reyndar, það viðurkenna það fáir eða enginn. Fólk kemur með svona bull eins og að hundinum verður svo heitt á sumrin. Já einmitt, við búum á ÍSLANDI. Það verður ekki of heitt fyrir hundinn. Fyrir utan að feldurinn er ákveðið kælikerfi líka - veit ekkert hvernig það virkar nákvæmlega samt. Þannig að rakarar... ekki bulla, viðurkennið bara að þið nennið ekki að ryksuga ;) Later

Stórþrif

Í dag var voffabað dagur. Ronja litla ræfilsleg, rennandi blaut - ósátt við svona meðferð... ég sagði henni ekkert að hún á afmæli í dag þessi elska. Var svo tætt í útliti þegar undirfeldurinn ryðst svona laus undan yfirfeldinum. Frekar vandræðalegt þegar þau verða svona eins og flækingar. Það er eins og enginn hugsi neitt um þau. Það sést nú eiginlega ekkert hér að ofan hversu mikið var laust í henni og hversu sárlega hún þurfti á þessu baði halda... og þá sérstaklega blæstrinum. Sést betur hér að neðan - skilin á því sem er búið að ná ágætu og svo því sem enn er eftir. Þetta tók sinn tíma - var heil lengi að blása hana til að gera hana fína. En það tókst samt og hún er voða glæsileg núna. Nema kannski fyrir utan kollinn, við ráðum ekki við það. Dýralæknarnir aðeins of glaðir að raka í kringum sár og skurði.  En það eru alla vega að koma hár þarna aftur. Sést illa á þessari mynd en í alvöru það óx hanakambur þarna - það er spes. Vona að þetta ver...