Fólk þarf að hugsa hvað það segir og hvernig það kemur fram við börn og unglinga, ekki bara vera hissa yfir fáum stelpum í þessum greinum og fáum strákum í hinum.
Svo finnst mér alltaf pínu skrýtið að það er endalaust verið að reyna að fá fleiri konur í hefðbundin "karlastörf". En ég sé aldrei neitt sem gengur út á að fá stráka til að skoða betur það sem við köllum hefðbundin "kvennastörf".
Þegar öllu er á botnin hvolft verður fólk að geta valið það sem það vill læra og starfa við - án áreitis og athugasemda frá samfélaginu. Fólk á að fá að velja sér framtíðarstarf í friði og geta verið sátt og stolt yfir því sem það velur og gerir vel.
Later
Ummæli