Fara í aðalinnihald

Færslur

Spennandi verkefni

Að venja nýjan fullvaxinn, ógeldann, rakka á heimilið er góð skemmtun :o) Þau eru svo fyndin hérna. Þeim er haldið aðskildum innandyra, ekki að ástæðulausu. Búin að færa búrið hans Leloo hérna í holið. Hann hefur fengið að vera mest laus hérna í íbúðinni á meðan hin tvö eru úti eða inni í forstofu. Nú er ég að reyna að hafa hann aðeins í búrinu á meðan Ronja og Úlfur eru laus í kringum hann. Gengur merkilega vel finnst mér. Þau svona aðeins létu vita af sér hérna áðan, endaði þannig að ég lokaði þau aftur inni. Hleypti þeim svo út stuttu síðar og þau nenna ekki að skoða hann mikið né urra neitt. Slappa af hérna hjá mér frekar og láta hann eiga sig. Það er heilmikill sigur finnst mér. Öll pollróleg... svona eins og hægt er. Fer með þau út að ganga á eftir. SBK kemur með mér. Ekki hættandi á að vera ein með þrjá hunda sem gætu tekið upp á því að ræða málin í fullri alvöru. Alla vega ekki svona öfluga hunda. Í gær fór ég með Olgu og Rósu á Helgafellið. Gengum gilið í stað hefðbund...

Rakkarígur

Þetta verður áhugaverð vika. BH á leiðinni út og við að venja nýjan ársgamlan rakka á heimilið. Spennandi verkefni en jafnframt verulega krefjandi. Finndist betra að hafa BH hérna því þó ég telji mig nokkuð harða og fínan uppalanda þá virðist hann hafa betra vald á hundunum en ég á börnunum. Fínt jafnvægi hérna. Þegar ég stóð fyrst á milli rakkanna hérna á heimilinu, heimilinu sem Úlfur minn stjórnar (ef frá er talin Ronja sem á heiminn), þá fékk ég smjörþefinn af því að grennast um fullt á stuttum tíma. Svona svæðabrennsla. Ég stóð á milli þeirra, þeir á feita urrinu og sýndu allar sínar fallegu tennur á ekki svo fallegan hátt. Ég að hvæsa á þá og byrsta mig eitthvað þegar þessi yngri fyrir aftan mig urrar og geltir allt í einu, svo djúpt og ógnandi að mér dauðbrá. Lærið á mér fékk sjokk og ég hló taugaveiklunarhlátri og sagði að það minnkaði um helming úr hræðslu við að vera étið. Setti bara Úlfinn aftur í forstofuna og slakaði þar með á spennunni, þar til næst :o) Þetta kemu...

Stolið af fésinu...

“From time to time, people tell me, “lighten up, it’s just a dog”, or, “that’s a lot of money for just a dog”. They don’t understand the distance traveled, the time spent, or the costs involved for “just a dog”. Some of my proudest moments have come about with “just a dog”. Many hours have passed and my only company was “just a dog”, but I did not once feel slighted. Some of my saddest moments have been brought about by “just a dog” and in those days of darkness, the gentle touch of “just a dog” gave me comfort and reason to overcome the day. If you, too, think it’s “just a dog”, then you will probably understand phases like “just a friend”, “just a sunrise”, or “just a promise”. “Just a dog” brings into my life the very essence of friendship, trust, and pure unbridled joy. “Just a dog” brings out the compassion and patience that makes me a better person. Because of “just a dog” I will rise early, take long walks and look longingly to the future. So for me and folks like me, it’s not “...

Canicross

Tók þátt í Íslandsmeistarakeppni SHKÍ - hljóp fimm kílómetra á Þingvöllum í rigningarsudda. Mjög frískandi og svalandi. Ég bætti mig um tæpa mínútu... 25:01 er minn besti tími hingað til. Það dugði mér til að komast í fyrsta sætið og get ég því kallað mig Íslandsmeistara í fimm kílómetra canicross kvenna. Er nú bara nokkuð ánægð með það, fékk medalíu og bikar og alles - voða montin. BH tók þátt í tíu kílómetra canicross og vann karlaflokkinn með tímann 49:02 - svo við erum ansi lukkuleg með okkur hjónin núna. Hann tók þátt í dog-scootering í gær. Þá var hann á keðjulausu hjóli með tvo hunda. Varð í öðru sæti og sáttur við það. Annar hundurinn varð sár á grófu malbikinu og neitaði að fara lengra eftir fjóra kílómetra... svo hann kippti Hrímu sinni í fangið og hélt á henni, á hjólinu, næstu fjóra. Úlfur dró þau í mark. Svo þau voru dáldið svöl er þau renndu i mark. Fólki virðist umhugað um að spilla gleðinni fyrir okkur - bæði um helgina og á Mývatni. Finnst það frekar súrt því ég te...

gáta...

Hvað eiga þessar dagsetningar sameiginlegt : 31. júlí 2008, 1. janúar 2009 og 21 september 2011 ? Enginn ? Jú þessa daga mættu loðnir ferfætlingar í þetta hús með framtíðarbúsetu í huga :o) Þeir sem halda að við séum klikk, endanlega gengin af göflunum eða bara slétt út snarbiluð... vinsamlegast takið númer og farið í röðina. Þetta er minnsti gaurinn okkar... Svona lítur hann út núna - ekki svo lítill lengur... jafnvel stærri en Úlfur, en klárlega yngstur ! Svona lítur pakkið þá út :o)

Mýtl ?

Ligg hérna hangandi á netinu og aldrei þessu vant sofnaði BH á undan mér... Það er skemmst frá því að segja að hann hrýtur og mér finnst það hrikalega fyndið því nú er klárlega komið veiðileyfi á hann. Hef ansi oft fengið að sitja undir lélegu hrotugríni, en nú fær hann þetta í bakið. Og bara svo það sé á hreinu... Ég hrýt ekki, ég í mesta lagi mýtla ! Gnótt

Þessi fallegi dagur...

Það er fátt meira freistandi en að skríða undir teppi og horfa á góða mynd í sjónvarpinu í svona veðri. En fátt meira hressandi en að drífa sig út og ganga með ferfætlingana í svona frískandi haustveðri. Og það ætlum við hjónin einmitt að gera á eftir :o) KEB situr sveittur og lærir því það þarf að nota þann litla frítíma sem hann hefur vel. Og fjögur misstór próf framundan. Engin grið gefin í þessum skóla og þá ekki fimleikunum, svo það er eins gott að vera á tánum með þetta allt saman. Litla skottan hins vegar skellti sér í gær með frænku sinni upp á heiði og hjálpaði til við að smala í fyrsta sinn. Og að sjálfsögðu stóð drottningin sig bara vel eins og búist var við. Hún og Sóldís, farskjótinn hennar, voru gott teymi. Þau voru heppin í gær með veður. Erfitt að vera blautur og kaldur allann daginn á baki úti í móa. En í dag koma auka fötin og nestið sér sennilega vel. Nú eru þær að rétta frænkurnar ásamt helling af liði. Heyrðist á SBK að hún ætlaði að skipa bara fyrir og benda á þ...