Fara í aðalinnihald

Færslur

Snjókorn falla...

Það er jólalegt um að litast í Mosfellsbænum núna. Ég sem hélt í morgun að þetta yrði farið um kl. 15. Í dag var haldin Vorhátíð, skrúðganga með skáta í fararbroddi gekk að Lágafellsskóla þar sem var mikið fjör. Þau voru ansi blaut greyin þegar komið var að skólanum. Skátarnir sáu um að skemmta sér og gestum með hoppukastala og klifurturni. Græddu smávegis á fólki með því að selja þeim gotterí. KBB stóð vaktina fyrir okkur. Var fánaberi í fánaborginni. Hjálpaði svo til í allan dag í sjoppunni og hoppukastalanum. Hún vill koma því á framfæri við foreldra að þeir ali kvikindin í sín upp... bara smávegis. Skrúðgangan var sorglegri en ég hef nokkurn tíman áður upplifað. Við BH hlupum hér út í Bogahlíð til að troða okkur með. Ég var ekki tilbúin fyrr svo við gátum ekki verið með alla leið. Þegar við sáum þau koma og bættumst svo í hópinn þá tvöfaldaðist mannfjöldin nánast í göngunni. Skátarnir höfðu samt enn betur, voru fleiri en þeir sem gengu á eftir. Smá snjór á vorhátíðinni er nú engin ...

Skal - ætla - get

Var einhver að sjá þrjóskusvipinn á púkanum mínum :o) Duldið líkur pabbanum sínum ! Flottur strákur, bakka ekki með það - getur allt... duldið líkur pabbanum sínum :o) ÁFRAM LÁGÓ !

Happy thoughts

Mamman að fara á límingunum og ég veit fyrir víst að pabbinn er ekki skárri... eiginlega jafnvel bara verri. Skólahreysti í beinni útsendingu eftir tvo klukkutíma og guttinn á heimilinu einn af fjórum sem standa vaktina fyrir Lágafellsskóla. Þau komust inn bakdyramegin eins og í fyrra. Annað af tveimur liðum sem komst inn úr öðru sæti. Held að ekki verði búist við miklu af þeim í keppninni. En fólk veit ekki það sem við Mosfellingar vitum... hér er ekki gefist upp fyrr en að keppni lokinni... alveg lokinni. Svo þau hafa verið súper dugleg við æfingar og öll bætt sig heilmikið. Svo mikið að þau voru ansi borubrött á þriðjudagskvöldið. KEB var mjög ánægður með árangurinn í vikunni og mjög viss um að gera góða hluti í keppninni sjálfri. Hífingar og dýfingar eru ekki alveg auðvelt og kannski ekki hans sérsvið heldur. En hann lét eftir hraðabrautina til að Óskar gæti keppt. Óskar var meiddur á hendi og átti ekki séns í hitt þar af leiðandi. KEB er búinn að æfa af kappi og bæta árangur sinn...

ipad

Eftir að hafa verið með svona smá yfirlestur og nett leiðindi vegna einræðisstefnu eiginmannsins à ipad-inum sem hann fékk að gjöf frà RES fyrir vel unnin störf undanfarin àr þà àkvað hinn sami eiginmaður að þagga niður í mér. Daginn sem ég keypti mér skóna fínu, hvítu og bleiku, fékk ég minn eigin ipad í stíl við skóna. Nú læt ég ipad BH alveg í friði, sem ég gerði reyndar àður líka. En nú eru krakkarnir eins og hrægammar yfir okkur og adda misgáfulegum leikjum og svona. Þeim finnst þetta OFURKÚL! Þetta er sumsagt mitt fyrsta, og sennilega síðasta, blogg skrifað á minn ofurfína hvíta dömuskvísu ipad! Það mà geta þess til gamans og gott að halda því til haga, að tilviljun ein réði því að skórnir og ipad-inn eru í stíl. Við erum bara svo óskaplega tengd hjónin. Þurfum ekki að tala saman... Vitum alveg hvað hitt er að hugsa, jafnvel àður en það er hugsað. Ég t.d. ætlaði að kaupa svarta skó en ákvað að vera sumarleg. Og BH veit manna best að konan hans er lítil dama, en àkvað engu að síðu...

Út að leika

Vígði nýju hlaupaskóna mína í dag - hljóp bara lítinn hring til að athuga hvort ég myndi deyja á leiðinni. Komst heim og bara þokkaleg á eftir. Skórnir eru himneskir - svo mjúkir og æðislegir. Trúi ekki öðru en að það skipti máli. Ætla láta duga að kaupa mér skóna - held bara að gömlu íþróttabuxurnar og bolur verði látið duga í klæðnaði. Held bara að hlaupagallinn eins og alvöru hlauparar eru í verði eitthvað sem ég láti bíða, að eilífu. Enda ekki á leið í eitthvað megasega hlaup dæmi. Langar bara að hlaupa með hundana öðru hvoru :o) Ætla ekki að kaupa mér kort í líkamsrækt. Ætla fyrst að vera dugleg úti og athuga hvort kroppurinn þoli bullið í mér. Búin að vera dugleg að ganga á fell undanfarið. Fimmtíu og níu kílómetrar komnir frá áramótum í svona léttum fjallgöngum. Svo verða línuskautarnir vinsælir í sumar. Fall er fararheill og ég er búin að FLJÚGA svo flott á hausinn. Þannig að ég hlýt að vera búin með minn skammt. Þakka fyrir að hafa verið með hjálm (sem blossað frá í högginu) o...

MotoMoto

hvað gerist ef ein bolla og ein spíta leggja í púkk ? Úr því verður kroppalingur - KEB kosinn Hr. Kroppur í Lágó á árshátíðinni í gær. Hann var ekkert að segja okkur það neitt... nei fáum allar svona fréttir frá innanbúðarmanneskju sem við komum fyrir innan veggja skólans :o) Later

oh well :o/

Hér sit ég og er með smá tölu yfir manni mínum, svona um lífið og tilveruna og hvernig ég geri hlutina og svona. Nei ég var ekki að lesa yfir honum eða með skammarræðu - bara svona að velta einhverju fyrir mér. En fékk ekkert svar neitt samt, fannst þögnin heldur mikil eitthvað, átti von á smá viðbrögðum. Þó ekki væri nema svona "já" eða "mhmm" eða "svona er fólk misjafnt" eða eitthvað slíkt. Ég leit þá upp frá tölvuskjánum og sá hann með tölvuna í fanginum að vinna... með headphones á eyrunum og ég heyrði þá í tónlistinni líka. Svo hann heyrði EKKERT í mér og svaraði því eðlilega engu. Svona er þetta með fólkið á heimilinu mínu, þetta er mjög algengt vandamál. Þau eru öll búin að slökkva á mér. það er ekkert skrýtið þó ég einbeiti mér bara að því að spjalla við hundana mína. Þau hlusta alltaf á mig þó viðbrögðin séu stundum lítil og þau haldi bara áfram að kúra sig, nokk sama hvað ég röfla. En þau heyra alla vega í mér samt :o) Later