Fara í aðalinnihald

Færslur

Nýtt ár á miðnætti

Gleðilegt nýtt ár öll sömul, vona að þið hafið haft það jafngott og við yfir hátíðina. Takk fyrir það gamla og vona að ég hitti sem flesta sem oftast á nýja árinu. Við hérna á heimilinu ætlum að vera bjartsýn á árinu 2010 þrátt fyrir allt og hlökkum til nýrra ævintýra sem bíða okkar alls staðar. T.d. í dag fórum við á Reykjavíkurtjörn sem er frosin, þar hittum við fullt fullt fullt af fólki með sína huskies - það var svo gaman. Allir að láta draga eitthvað, stigasleða, alvöru hundasleða, fólk, fólk á skautum. Bara stuð. Við tókum eitthvað á fimmta hundrað myndir held ég og BH er búinn að setja nokkrar inn á flickr hjá sér - endilega kíkið á þær. Nú hlakkar okkur bara til þegar búið verður að smíða okkar hundasleða - hann er í bútum inni í bílskúr. Þ.e. búið að kaupa og saga niður timbrið - askur varð fyrir valinu. Og ég sem vildi að rakkinn minn fengi nafnið Askur :o) Er reyndar kominn með nafn á einn rakkann til - en hér verður varla bætt við fleiri hundum, við höfum alveg nóg með þes...

Gleðileg jólin

Jóla... jólajóla

KBB fór í gær með ömmu sinni og afa á jólatónleika Baggalúts og þau komu heim á bleiku jólaskýi. Pa talaði um bestu tónleika sem hann hefur farið á, litla mín brosti allann hringinn og ma var alsæl yfir því hversu skemmtilegir hljómsveitarmeðlimir voru. Ég var verulega sátt að heyra að þetta hefði verið svona gaman, það var tilgangurinn með því að senda þau saman, alltaf gaman að gera eitthvað svona skemmtilegt á aðventunni. Held svei mér þá að það sé búið að redda öllum jólagjöfum í ár, alltaf gott þegar þær eru allar komnar í hús. Fyrsta var sett upp í skáp í byrjun október og síðustu tveimur var bjargað hingað heim í kvöld :o) Nú þarf ég bara að ganga frá nokkrum þeirra og pakka öllu fíneríinu inn. Það tekur alltaf sinn tíma svo það verður græjað á morgun, er orðin heldur þreytt núna til að byrja. Ég fór nefnilega ekki að sofa fyrr en 3:20 í nótt - drengurinn með gubbupest frá miðnætti til hálf fjögur. Sem betur fer varð hann ekki hundveikur eins og þau hafa stundum orðið krakkarnir...

Aðventan

Ég er búin að vera þokkalega dugleg að taka aðventuna með trompi. Þ.e. ekki mikið stress, bara rólegheit og þægilegt. Kaupi jólagjafir svona eftir því hvað mér dettur í hug fyrir hvern og einn. Fer í bæinn svona þegar ekki allir hinir eru. Hangi hérna með fjölskyldunni heima eða við förum út í göngutúra eða eitthvað skemmtilegt. Fór svo í gær með bæði börnin mín í Kringluna, redda KEB eitthvað undir jakkann sinn. Hann ætlaði að vera í fermingarfötunum, um það var samið fyrir löngu. Já já tók jakkann með svo hann gæti mátað yfir bol eða skyrtu eða hvað hann vildi sjálfur helst. Hann fann sér fína skyrtu sem hægt er að nota meira en bara sparispari - langaði svo jafnvel í bindi líka, já já kraftaverk gerast. Hann mátaði skyrtuna og kom sér svo í jakkann til að sjá hvernig þetta færi nú saman allt saman - sæll, jakkinn orðinn of lítill. Og ég sem keypti hann sæmilega við vöxt og það allt s.l. apríl. Það eru bara mistök að kaupa rúm föt á þessa drengi þeir vaxa allir upp úr þessu á methrað...

Hundalíf

Það er fátt skemmtilegra en að ganga úr stofunni, eftir að hafa setið þar dágóða stund, og inn í hol og sjá þar einn hund búinn að hringa sig eins og snúð í bælið sitt og hinn (svo dannaður) búinn að skella sér á bakið og viðrar punginn með framfæturna eins og kanína útí loftið. Það klikkar ekki að bros færist yfir andlitið og jafnvel smá hlátur með. Later

Sunnudagur til hvíldar

Er það ekki svoleiðis... Well ekki á þessu heimili - við erum þrjú hérna ásamt voffum að rjúka út að hitta fleiri vitleysinga með ferfætlínga kl. 13. Planið að fara í göngutúr í þessu skemmtilega veðri í Marardalnum. KEB er í sumarbústað ennþá með bekknum sínum, ég skutlaði þeim í hellidembu á föstudaginn. Efast ekki um að þau hafi skemmt sér vel en ég var víst búin að lofa að sækja þau líka. Reddaði mér fínt, ma og pa ætla að sækja þrjá þeirra og einn fær far með þeim foreldrum sem eru hjá þeim uppfrá. Nice fyrir mig að spara mér bíltúr og fara að gera eitthvað annað skemmtilegt. Ma og Pa eru í Skorradalnum og voru alveg til í að taka smá aukabíltúr og sækja drengina, munar þau ekki svo miklu þó það sé aðeins lengra en beint heim. Svo ætlum við fjölskyldan að kíkja til Eddu sem endaði í smá laufakökuútskurði með alla fjölskylduna á bakinu. Bara gaman að sjá hvernig það tekst til og hvort ekki verði reynt aftur að ári með þá kannski örlítið lengri undirbúningi. Í kvöld ætlum við BH sv...

Gert er ráð fyrir...

Hvað er með þetta veður???? KEB á leið í bústað með bekknum sínum, væri nú skemmtilegra ef þau gætu rekið út nefið án þess að fjúka út í móa :o) Held ég fái BH eða krakkana til að "viðra" hundana í dag LoL Annars liggja þau nú bara bæði inni í búrunum sínum og hrjóta. Þau virðast jafnlöt og mannfólkið í þessu veðri og það er kostur fyrir mig núna :o) Later