Við komin heim úr Skorradalnum eftir vel heppnaða helgi. Sól og blíða alla helgina og við vel bökuð. Krakkarnir voru út á bát meira og minna sunnudag og mánudag. BH, SBK og pabbi sáu um að þeyta þeim þarna um allt vatnið. KBB sat á blöðrunni og var dregin um allt en KEB prófaði sjóskíðin í fyrsta sinn og stóð svona líka fínt. Þurfti aðeins tvær tilraunir og hann var góður. Varð aðeins fyrir aðkasti því hann átti það til að sleppa annarri hendi og laga hárið á undarlegustu tímum, það þótti frekar fyndið. Hundarnir hegðuðu sér súper vel - Týri minn var ekki eins mikið á urrvaktinni og venjulega. Lét aðeins svona í sér heyra öðru hvoru en bara svona til að minn á sig. Ég endaði með þau öll í göngutúr í gær á meðan hinir skemmtu sér á bátnum. Það var frekar skrýtin sjón greinilega því ég fékk heilmikla athygli, stöðvaði fótboltaleik, kaffiboð og gönguferðir fólks. Tveir toghundar í bandi og svo Týri sem er nú ekkert vanur að vera í taum. En þetta gekk nú ágætlega, það var helst snúið þegar...