Fara í aðalinnihald

Kynjahlutverk

10 ára dóttir mín er alveg með það á hreinu (eins og móðir hennar áður) að ef hún nær sér í mann þá verður hann hærri en hún og eldri - alla vega einu ári. Svona er þetta innbyggt í okkur. Hún fór aðeins í flækju þegar ég sagði henni að Amma hennar ein er nú eiginlega hærri en afinn og önnur amma eldri en sá afi sem hún er gift. Þetta breytti samt ekki hennar afstöðu. Hærri og eldri skal hann vera. Ekki mikið eldri bara svona árinu kannski. Gat eyðilagt það fyrir henni líka og sagði henni að einn afinn er töluvert eldri en sú amma sem hann er giftur. Þetta var aðeins hugsað en breytti í engu hennar áformum um væntanlegt mannsefni. Svo sjáum við bara hvað setur - við skulum vona að hún verði ekki svo ákveðin að hún missi af hinum eina sanna vegna einhverra ímyndaðra staðla sem verður að fara eftir.

Ég fór í Álafoss hérna í kvosinni um daginn að kaupa lopa í peysuna fyrir gaurinn minn. Er ég gekk frá bílnum að búðinni þá kom þar að móðir með litla pjakkinn sinn. Sá var uppveðraður yfir tveimur glæsilegum mótorfákum sem stóðu við dyrnar. Mamman brosti að áhuga litla mannsins og sagði já mennirnir eiga mótorhjólin. Ég varð hugsi og langaði að segja - já eða konurnar - en sleppti því. Hugsaði að kannski væru þarna kona og maður á hjólum. Það eru svo margar konur núna á þessu flottu hjólum. Og svo fór ég að velta fyrir mér - hvað ættu gaurar á mótorhjóli erindi inn í lopabúð? (Mín kynjastaðalímynd - gaur í lopabúð, glætan). Fyrsta sem ég sé við afgreiðsluborðið var GAUR að kaupa lopa og hann var svo greinilega að fara að prjóna sjálfur og hafði oft gert áður. Læt það fylgja að hann var fleiming gay (engir fordómar - bara augljóst). Þegar ég var búin að þefa uppi þá liti og tegund sem ég vildi og telja dokkur til að hafa nógu margar, gekk ég að afgreiðsluborðinu aftur og þar sá ég eigendur hjólanna. Tvær leðurklæddar gellur að kaupa sér lopa :o) Það voru sem sagt engir gaurar á þessum hjólum, en það var samt einn gaur í búðinni í þeim erindagjörðum.

Sit hérna að færa bókhaldið og hlusta á útvarpið - auglýsing frá ehe já aa man ekki alveg - held SS. Byrjar í ástarsögustílnum, hún hlakkar til að fara en er hrædd um að allir geti lesið tilfinningar hennar.... hann (HANN) kveikir upp í grillinu - og svo er bara lesið upp hversu geggjað kjötið er sem með er í för... auglýsingin búin (ætti ég ekki að vera handritshöfundur?) - Anyways það náði athygli minni að HANN kveikti upp í grillinu en hún var í flækju þarna greyið. Af hverju var hún ekki bara við grillið líka. Alltaf gengið út frá því að dúddinn grilli. Það er reyndar oft raunin og karlar alveg að missa sig yfir hvað þeir eru karlmannlegir í þessu hlutverki. En á mínu heimili fengjum við ekkert að borða allt sumarið ef BH ætti að sjá um að grilla fyrir oss.

Þetta var bara svona HUGL yfir því hvað kynjaímyndir eru fastmótaðar í okkur ennþá :o)

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...