Fara í aðalinnihald

Færslur

Smá grín

KBB fór á sundæfingu í gær, hringdi í mig hálf miður sín rétt eftir þrjú er ég var í göngutúr með Ronju. Íþróttapokinn hennar hafði horfið, hún hafði lagt hann frá sér á stól þar sem þau bíða eftir kennaranum, farið og talað við Unu vinkonu sína. Þegar kom í ljós að kennarinn var veikur og hún ætlaði að grípa pokann til að fara heim, greip hún í tómt. Enginn poki. Hún hringdi í mig og vildi að ég kæmi til að hjálpa henni að leita. Leiðinlega ég hélt nú ekki - alveg búin að fá upp í kok af týndum flíkum og hlutum. Sagði henni að starfsfólkið hlyti að geta aðstoðað hana því pokinn hvarf þarna innan fimm mínútna. Ekki var hún komin heim er ég kom heim svo ég áleit að hún hefði fundið sundfötin sín og verið á æfingu. Það var nú ekki svo gott. Hún kom heim kl. rúmlega hálf fimm með tárin í augunum, eyðilögð því hún fann ekki sundfötin sín. Hafði leitað í öllu íþróttahúsinu og ekkert fundið. Ég komst að því að hún hafði ráfað þarna um eins og aumingi á meðan starfsfólkið lét eins og það sæi ...

Allt brjál!

Má maður ekki taka sér helgarfrí og þá hrynur bara bankinn sem maður verslar við og allt í rassgati. Gott að ég á bara skuldir, þær mættu alveg fuðra upp með bankanum. Gera það nú sennilega ekki, bara peningarnir sem krakkarnir eiga þarna inni - ætli þeir myndu ekki fuðra upp fyrst. Þegar ég lagði inn á bundinn reikning fyrir þau spáði ég mikið í þetta því ég vildi ekki að þetta myndi gerast. Þau mega ekki taka út sitt fé fyrr en 18 ára af ákveðnum reikning og ég var hrædd um að nákvæmlega þetta sem er að gerast núna myndi gerast. Nei ég er ekki svona forsjál - alls ekki. Og fór að leggja inn á þessa reikninga. Ég veit bara að það sem lagt var inn hjá Landsbankanum fyrir mig er ég var barn - einhverjir afmælispeningar - skírnarpeningar og þannig voru rúmlega 300 krónur þegar ég leysti það út fyrir 4 eða 5 árum. Jebb gengisfellingin fór svona með það sparifé - kallast þjófnaður í mínum kokkabókum. Hefði annars verið rúmlega 30 þúsund. Merkilegt hvað lánin mín hækka töluvert miklu hraðar...

Nóg að gera

Of mikið eina helgi - varla tími til að anda! Við mæðgur kláruðum sláturgerðina á föstudagskvöldið. KEB var í fimleikum til kl. 19 og hljóp þá yfir til ömmu sinnar. Ekki hress pjakkurinn er hann uppgötvaði að hann kæmist ekki heim fyrr en um kl. 23! Mamman aðeins búin að gleyma að greyið þarf að vakna snemma til að bera út. Fór því með honum laugardagsmorguninn í útburðinn. Gott að taka daginn snemma. Við mamma fórum svo fyrir hádegið að Gamla Hrauni þar sem afi minn ólst upp og hittum þar nokkra móðurbræður og þeirra syni og aðra fjarskyldari ættingja. Tilefnið var að hreinsa út úr húsinu drasl sem safnast hefur saman í svona u.þ.b. 80 ár eða svo. Þegar við höfðum fyllt tvo stóra gáma og komum ekki meira fyrir ákváðum við að hætta. Nei við vorum alls ekki búin - það þarf lágmark 2 eða 3 gáma í viðbót. Og við erum að tala um lítinn bæ. Afabróðir minn, Helgi, sem þarna bjó eftir dag foreldra sinna dó s.l. febrúar og nú á að selja jörðina. Gamli maðurinn var víst mjög handlaginn, svona þ...

Vaxtaverkir!

KBB búin að kvarta undanfarinn mánuð um verk í hægra hnénu. Hef svona nett verið að ignora hana með þetta. Sagði henni að þetta væru bara vaxtaverkir, hún stækkar svo hratt. Um daginn hvæsti hún á mig að þetta væru sko engir vaxtaverkir - það er ekkert bara hnéð sem vex! Í gær er hún var að fara að sofa sýndi hún mér hnéð og ég skoðaði bæði hnén. Hægra hnéð var greinilega stokkbólgið - hún hefur ekkert dottið eða orðið fyrir neinu hnjaski. Hún átti tíma hjá lækni áðan - rétt náði að koma mér heim úr bænum og ná í stelpuna og koma á réttum tíma. Vörtudruslan á þumlinum hefur bara stækkað og því þarf að frysta og svo koma aftur eftir tvær vikur og frysta. KBB til mikillar gleði - NOT. Við spurðum lækninn út í hnéð, hann rétt leit á bólguna og sagði - "dæmigerðir vaxtaverkir" he he - mamman ekki svo vitlaus eftir allt saman. Hann ráðlagði bólgueyðandi krem og teygjusokk um hnéð að staðaldri. En fimleikarnir? Ekkert svona hopp og álag, það er slæmt. Þannig að KBB er brjáluð - vil...

Gott tímakaup

Búin að vera á fullu í allan dag. Ákvað að fara ekki í líkamsrækt í morgun, fór í gærmorgun. Ætla ekki að fara of geyst af stað svo ég (kroppurinn) gefist ekki strax upp. Fínt að komast að hreyfa sig aðeins vona að ég verði dugleg. Hef ekki áhuga á að verða ein af fjölmörgum sem borga mánaðarlega til líkamsræktarstöðva og nota ekki aðstöðuna. Hefði þá frekar sett peningana til góðgerðamála. Ætli við förum ekki á morgun hjónin, dreg hann öfugan með mér ef þess þarf. Ég er samt að vona að hann komi sjálfviljugur. Byrjaði morgunin á að þrífa hérna hjá okkur, geymdi mér að skúra þar til seinna í dag því ég var á leið út. Hef því ekki skúrað - missi engan svefn yfir því. Aulaðist svo út í hádeginu - endemis bíllinn bensínlaus, byrja á að ná í bensín. Það er svoooo leiðinlegt að ég fer yfirleitt síðasta spölinn á gufunni að dælunni. Þaðan var haldið í Lágafellsskóla, KBB gleymdi fiðlunni sinni í morgun. Notaði tækifærið og leitaði sjálf að vind/regn jakkanum hans KEB. Jakkinn búinn að vera t...

Fúl

Morguninn byrjar ekki vel - veðrið er ömurlegt og ég HATA skattinn. Sigurður Líndal sagði einu sinni í tíma að það hefði í gegnum tíðina verið þjóðaríþrótt Íslendinga að svíkja undan skatti. Ég er ekki týpan í það - alls ekki og hef engar taugar í slíka starfssemi. En ég tók í arf frá forfeðrum mínum einlæga andúð á öllu sem viðkemur skattinum. Mrs. Grumpy