Framundan er pæjuhelgi hjá okkur mæðgum - feðgarnir á leið í Skóginn að skemmta sér saman ásamt fullt af öðrum gaurum. Vona að veðrið þar verði ekki bara rok og rigning, vissara samt að pakka regnfötum og stígvélum með þeim. Enn einn læknatíminn búinn, bara einn eftir þetta árið (vonandi), fer til Jóns á mánudaginn - klára þetta áður en skólinn byrjar það er toppurinn. Nú þarf ég bara að fara að drífa mig í búðina að versla - þrífa hérna hjá okkur og þá er ég ready að pæjast með KBB næstu tvo daga. Pæjumamma