Fara í aðalinnihald

Færslur

Dans á rósum

16:50 fékk ég að vita að það væri danssýning hjá sjötta bekk í Lágafellsskóla kl. 17:00, við mæðgin rukum út svo gaurinn gæti tjúttað með hinum fyrir foreldra og aðra áhugasama. Sýningin var skemmtileg eins og árin áður en heldur færri mættir en áður þar sem foreldrar virðast almennt ekki hafa verið látnir vita - enginn tölvupóstur þetta árið. Þau gátu dansað Jive, Rumba, samkvæmisdans, línudans og tískudansa. Eina sem ég gat hugsað var ... damn, wish I could do that! Það er aðeins meira varið í skólakerfið núna en þegar ég var í skóla. Það er ekki bara lögð áhersla á stærðfræði og íslensku. Í Lágafellsskóla er alla vega mjög fjölbreytt námsefni og fullt af hæfum og góðum kennurum. Allir fá að læra á blokkflautu í tvö ár, svo geta þau hæfustu og áhugasömustu haldið áfram t.d. í skólahljómsveitinni. Allir læra dans, alla vega þrjú ár vona að það verði lengur - þau hafa gott af því. Þokkalega hæfir ungir herrar á skemmtistöðunum eftir 6 ár. Svo eru þau að sjálfsögðu í öllum sérgreinunum ...

Lífið að láni

Var að lesa áðan að Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir hafi dáið í dag - fylgdist nú ekki með henni á blogginu hennar en vissi hver hún var og sá hana í fjölmiðlum. Það er svo sárt að hugsa til krílanna hennar, finnst alltaf erfitt að heyra þegar ungar mæður deyja frá ungum börnum. Finnst það bara vera lögmál að börn eigi að hafa mömmu sína hjá sér fram á fullorðinsár. Skilst að hún hafi verið dugleg að segja fólki að vera til og njóta þess vel. Ég tek undir það og reyni að fara eftir því með misjöfnum árangri. Um helgina er planið að við Kjartan Elvar breiðum úr okkur hér í kotinu á meðan feðginin leggja land undir fót og fara saman í Vatnaskóginn í feðginaflokk. Gummi fer með stelpurnar sínar líka þannig að þeim ætti ekki að leiðast (eins og það sé hægt í Vatnaskógi). Við erum nú samt bara ennþá að jafna okkur eftir Lundúnaferðina, verið að þvo allann þvott og taka til - það tekur alltaf tíma, en gengur vel. Karlotta mín var ansi þreytt í morgun eftir lítinn svefn, en Kjartan (morgunhani) ...

Ladies and chickenmen

jamm - þannig segir dóttir mín Ladies og gentlemen. Fjölskyldan er komin heim frá Lundúnum þar sem hún skemmti sér alveg konunglega síðan á fimmtudag. Þrátt fyrir afspyrnu dæmigert Lundúna og helgarveður (= rok og rigning) var rosa gaman og mikið fjör. Lestarkerfið var óspart notað og við náttlega með nefið fullt af ryki og lungun af skít eftir hvern dag - en það bjargast allt þegar heim er komið og íslenska vegarykið blæs þessu burt. Flugið gekk ljómandi vel - bæði út og heim aftur - ekkert vesen á flugvöllunum, lentum ekki í neinum röðum og gengum alls staðar beint í gegn, gat ekki verið betra. Nú er bara streðið byrjað aftur og minns á leið með Pizzu til mömmu því Baldvin ætlar að hjálpa pabba með tölvumál. Later, Lóa

Eitt enn

Er að fylgjast með fréttum hérna, ráðherravalið. Tek ofan fyrir Samfylkingunni að hafa jafnt hlutfall kvenna og karla í liði sínu. Eru Sjálfstæðismenn svona úrkynjaðir að þeir ræða þetta ekki einu sinni, ein kerla í þeirra liði, lélegir. Má ekki hrokagikkurinn Árni Matt. t.d. bara missa sín - myndi ekki sakna hans mikið. Ég kaus þá ekki núna og held bara að ég kjósi þá ekki aftur á meðan þeir eru svona miklar karlrembur. Og hananú Lóa

Brjálað að gera á vorin

Ok komst að því að það var vesen að commenta á síðuna, en held ég sé búin að breyta því þannig að það ætti ekki að vera mál - vona það alla vega. Það er svo mikið í gangi þessa dagana - eitthvað á hverjum degi. Tónleikar hjá Kjartani í gær og svo hjá Karlottu í dag, reyndar aftur á morgun því hún spilar með litlu strengjasveitinni líka. Semsagt þrír dagar í röð sem liðið á heimilinu mætir á tónleika, erum mjög menningarleg eins og ég er að reyna að koma að. Þarf ég að taka það fram að þau spila eins og englar og það er æði að sjá hvað þau eru dugleg. (smá hlutdræg hí hí) Af tónleikunum í dag var hlaupið á bekkjarkvöld hjá Kjartani Elvari þar sem krakkarnir voru búnir að leggja hart að sér að búa til sýningarbása um öll Norðurlöndin. Kjartans hópur kynnti Danmörk fyrir lýðnum og var básinn þeirra veglegur. Þeir voru með marga hluti sem tengdust landinu, Kjartan hafði fengið hjá Hans afa sínum marga fallega hluti sem vöktu mikla lukku. T.d. kolastraujárn, hálmskó, Raf-steina og hálsfest...