Fara í aðalinnihald

Viðkvæmni

Ég varð eiginlega alveg bit í gær - las póst á fb þar sem vinsamlegast var beðið um að fólk væri ekki að plata með þykjustu óléttu á fb sem aprílgabb... af því það er svo voðalega erfitt og sárt fyrir þá sem ekki geta átt börn.

REALLY ?

Ég missti hökuna niður á bringu... en var kannski ekki beint hissa miðað við allt og allt undanfarin ár. Það má bara ekki gera grín að neinu lengur né gera nokkuð sem á einhvern hátt getur farið fyrir brjóstið á einhverjum hópum eða einstaklingum.

Fólk... í alvöru, voðalega eru allir brothættir.

Ég viðurkenni fúslega skilningsleysi mitt á að finnast það vera aprílgabb að feika óléttu 1. apríl á fb. Finnst það ekkert fyndið og afskaplega slappt aprílgabb. 1. apríl gengur ekki út á að ljúga að fólki. Það gengur út á að láta fólk hlaupa apríl.

En ef einhverjum þykir það sniðugt þá bara gerir hann það. En að það særi svo voðalega þá sem eiga erfitt með að geta börn ??? Örugglega satt og rétt, en hvað með þá sem í alvöru eiga von á barni? Mega þeir ekki vera spriklandi lukkulegir með það og blasta þeim fréttum alls staðar sem þeir vilja? Næsta sem við vitum er að allar barnshafandi konur ættu kannski að halda sig innandyra því við viljum ekki að þeir sem ekki eiga eins auðvelt með að eignast börn þurfi að horfa upp á barnalán þeirra sem heppnari eru í þessum málum. Helena mín... darling... þú hefur þetta kannski í huga.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég verð hugsi yfir viðkvæmni fólks. Mér verður stundum hugsað til þess þegar fjölmiðlar fjölluðu um blogg sem þá varð aðeins vinsælt... sá sem skrifaði kallaði sig Trendsetter ef ég man rétt. Það var drullufyndið og gekk út á að deila á tískublogg. Ég skemmti mér vel yfir vitleysunni. Það leið alls ekki langur tími þar til fjölmiðlar fjölluðu um sárindi tískubloggara og hversu ömurlegt væri þetta einelti í þeirra garð og verið væri að gera lítið úr þeim. Þeir vældu sáran yfir því óréttlæti að verið væri að gera grín að þeim. Mér féllust hendur - þetta var bara fyndið og það var ekki verið að taka neinn einn fyrir sérstaklega. Trendsetterinn hætti held ég að blogga þetta grín. Hversu fáránlega viðkvæmt getur fólk verið ?

Ef maður á fatlaða vini í hjólastól, þarf maður þá að passa sig extra vel í kringum þá ? Má maður ekki segja "veit bara ekki í hvorn fótinn ég á að stíga" af því það minnir þessa vinkonu á að hún getur í hvorugan fótinn stigið?

Rætið ljótt grín sem beinist að persónu þykir mér sjaldan fyndið - ég á bágt með að sjá hvað er fyndið við að niðurlægja manneskju eða gera grín að óförum hennar. En svona heilt yfir þykir mér allt í lagi að sjá spaugilegu hliðarnar á lífinu og aðstæðum og hópum.

Og svona viðkvæmni getur líka verið mátulega spaugileg... það er pínu fyndið hvað fólk tekur sig hátíðlega.

Velti líka fyrir mér hvort fólk ætti ekki að hugsa sig vel um áður en það birtir myndir úr utanlandsferðum sínum á fb. Margir sem hafa ekki efni á því að skella sér í skíðaferð á veturna já eða í sólina á vorin o.s.frv. Veldur það ekki bilaðri vanlíðan hjá þeim og hinir ættu nú að taka tillit hmm ?

Við getum haldið áfram... hvað með alla sem sitja úldnir í ömurlegu hjónabandi eða sambandi... er ekki alveg glatað að það fólk þurfi að eiga á hættu að sjá myndir á fb af ástföngnu fólki sem geislar af hamingju - shit hvað það hlýtur sárt og vera erfitt.

Suck it up people... í alvöru.

Later

Ummæli

Unknown sagði…
Èg skal hafa þetta í huga 😊

Vinsælar færslur af þessu bloggi

svona keppnis...

Drengurinn byrjaði að æfa Frjálsar íþróttir núna í byrjun október. Gormurinn nær ekki að mæta á allar æfingar því fimleikarnir ganga fyrir og þetta rekst aðeins saman. En hann er duglegur að hlaupa milli og taka strætó og gerir eins og hann getur að komast á æfingar. Fyrsta mótið sem hann tekur þátt í var haldið í dag. Silfurmót ÍR í Laugardagshöll - yfir 500 krakkar mættir til leiks í öllum aldurshópum og greinum. KEB ákvað að keppa i 60m og 200m spretthlaupi og vildi sjá til með 800m hlaup. Við BH ætluðum að vera og sjá en misstum af 60m sprettinum þar sem hann kom fyrstur í mark í sínum riðli. Svo er farið eftir tíma og hann endaði í 7. sæti af 16 keppendum, ekki slæmt það :o) Hins vegar vorum við komin að kíkja á þá félaga þegar 200m hlaupið hófst og það var gaman að sjá þá strákana - allir að gera sitt besta. KEB var greinilega í sterkum riðli því það var sko hlaupið. Hann var annar mest allan tímann og þá hélt sá sem var þriðji að hann gæti bara komið framúr, KEB ekki sáttur þega...

Framtíðarsýn

Ég er pínu óróleg með að ég sjái hugsanlega fram í tímann, þessi framtíðarsýn mín er mjög sennileg. Hún er svona... Ég keyri Vesturlandsveginn á leið í bæinn, það er gott veður - sól og blár himinn - yndislegur vordagur. Tónlistin á háum styrk, ég með sólgleraugun, búin að hafa mig til, hárið fínt búin að klína spartli og lit á andlitið - syng með skemmtilegu lagi (sumir myndu segja gaula... ég held mig við syng). Að venju er hægri fóturinn aðeins þungur, búin að vera dugleg í ræktinni undanfarin ár... er alveg að sligast af vöðvum þess vegna, vöðvar eru þyngri en fita eins og allir vita ekki satt ? Bíllinn slefar í hundraðið... eða rúmlega það, sé það ekki vel í þessari sýn, eina sem skiptir máli er að drossían skröltir hraðar en 80 km/klst. Og auðvitað ryðst ég inn í radargeislann á þessum ljóshraða mínum og fljótlega blikka blá ljós fyrir aftan mig og ég neyðist til að hægja á skrjóðnum og renna ljúflega út á vegaöxlina. Ég lækka í tónlistinni, renni niður hliðarrúðunni og bíð...