Eftir að hafa verið með svona smá yfirlestur og nett leiðindi vegna einræðisstefnu eiginmannsins à ipad-inum sem hann fékk að gjöf frà RES fyrir vel unnin störf undanfarin àr þà àkvað hinn sami eiginmaður að þagga niður í mér.
Daginn sem ég keypti mér skóna fínu, hvítu og bleiku, fékk ég minn eigin ipad í stíl við skóna. Nú læt ég ipad BH alveg í friði, sem ég gerði reyndar àður líka. En nú eru krakkarnir eins og hrægammar yfir okkur og adda misgáfulegum leikjum og svona. Þeim finnst þetta OFURKÚL!
Þetta er sumsagt mitt fyrsta, og sennilega síðasta, blogg skrifað á minn ofurfína hvíta dömuskvísu ipad!
Það mà geta þess til gamans og gott að halda því til haga, að tilviljun ein réði því að skórnir og ipad-inn eru í stíl. Við erum bara svo óskaplega tengd hjónin. Þurfum ekki að tala saman... Vitum alveg hvað hitt er að hugsa, jafnvel àður en það er hugsað. Ég t.d. ætlaði að kaupa svarta skó en ákvað að vera sumarleg. Og BH veit manna best að konan hans er lítil dama, en àkvað engu að síður að fà hvíta skvísugræju.
Later

Ummæli