Aulaði út úr mér um daginn að 31. apríl - þá eitthvað sem ég man ekki lengur. Uppgötvaði strax að sennilega er enginn 31. apríl - því miður gerðu þeir sem á hlustuðu sömu uppgötvun. BH greip þetta eins og skot og sagði öllum að hann ætti nú einmitt afmæli 31. apríl. Hann á sem sagt afmæli á morgun og við tölum bara um afmælið 31. apríl. Á morgun er planið að að fjölskyldan leggi á Esjuna í smá morgungöngutúr með nesti og nýja skó, já eða nesti alla vega. Ég er nú ekki allt of spennt þar sem ég veit að dóttir mín er ekki duglegasti göngugarpurinn, þrátt fyrir að bróðir hennar sé steingeit - ekki í því stjörnumerki heldur er óstöðvandi gormur með óþrjótandi orku. Ég veit ekki hversu dugleg ég verð - planið að taka því rólega þarna upp og sjá til. Later